Vera - 01.02.2002, Blaðsíða 47
Anna Karenina
sýnd í Þjóðleikhúsinu
Hin mikla skáldsaga Leo Tolstojs, Anna
Karenina, lifnar um þessar mundir við á sviði
Þjóðleikhússins undir leikstjórn Kjartans
Ragnarssonar. Leikgerð verksins er eftir
bresku leikkonuna og leikskáldið Helen Ed-
mundson og vann til verðlauna þegar hún var
gerð árið 1992. í leikgerðinni er meiri áhersla
lögð á þátt Levins í sögu Önnu Kareninu en
áður hefur verið gert. Með aðalhlutverk í sýn-
ingu Þjóðleikhússins fara Margrét Vilhjálms-
dóttir seni leikur Önnu Kareninu, Stefán
Jónsson sem leikur Levin og Baldur Trausti
Hreinsson sem leikur Vronskí greifa.
í leikskrá segir þýðandi verksins, Árni Bergmann,
m.a. um skáldsöguna Önnu Kareninu: „Anna
Karenina er svo sannarlega skáldsaga sem vex og
vex og sprengir af sér ramma ástarsögu og fjöl-
skylduharmleiks og þjóðfélagslegrar skáldsögu
og óttast hvorki hinn lága hvunndagsleika né
stærstu eilífðarspurningar. Og þetta verk höf-
undar, sem síst allra óttaðist að fara með erindi
og halda fram skoðunum, hefur lífseigt orðið
ekki síst vegna þess að hvergi er betur fylgt eft-
ir þeim frjóa mannskilningi sem Tolstoj hefur
orðað eitthvað á þessa leið: Það er útbreidd hjá-
trú að hver maður eigi sér aðeins ákveðna eigin-
leika, hann sé annaðhvort góður, illur, vitur,
heimskur, dáðlaus, duglegur o.s.frv. En þannig
eru menn ekki. Við getum í mesta lagi sagt að
maður sé oftar heimskur en vitur, oftar góður en
fólskur. Mennirnir eru eins og fljót - vatnið er
það sama í þeim öllum, en hver á er ýmist lygn
eða straumhörð, gruggug eða tær."
Aukin ökuréttindi
Kennsla til allra ökuréttinda.
• • Bifhjólapróf og almennt ökupróf (B.réttindi).
e OKU /fV 5KOMNN W. 1 MJODD Einnig kennsla fyrir ensku og taílenskumælandi fólk !
Kennsla á leigu- vöru og hópbifreið
Þarabakka 3 109 Reykjavík og vörubifreið með eftirvagn.
Sími 567-0300 E-mail mjodd@bilprof.is Hægt að hefja nám alla miðvikudaga!
Frábærir kennarar og góðir kennslubílar. Aukið við atvinnumöguleikana. Hringið eða komið og leitið upplýsinga.