Vera - 01.02.2003, Side 59
andi einstaklingur væri „venjulegur". Ó-
ljóst er hvað það þýðir nákvæmlega, en
sennilega bendir það til að því verr sem
einstaklingur aðlagast hinu gagnkyn-
hneigða hegðunar- og lífsmynstri, því
erfiðari verði það fyrir hana eða hann að
hijóta viðurkenningu hópsins.“
Karlmennska
Guðjón spurði viðmælendur sína einnig
hvað karlmennska væri í þeirra huga:
„Sumum þótti karlmennska felast í því
að geta afgreitt hluti, bæði heima íyrir
°g í vinnunni. Flestum þótti lögreglu-
starfið hafa á sér karlmannlegan blæ þó
til væru önnur störf, t.a.m. sjómennska,
sem þeim þótti þó hafa enn sterkari
karlmennskuímynd. Einn viðmælandi
sagði að það sem honum þætti karl-
mannlegt væri vel vaxinn, skeggjaður
maður í búningi, en annar var alveg
tómur og hafði ekki hugmynd um
hvernig skilgreina ætti þetta sleipa hug-
tak. Karlmennskuhugtakið var þó ekkert
að þvælast fyrir einum lögregluneman-
um sem svaraði að bragði þegar ég
spurði hann út í það: „Karlmennska,
það er ég,“ og þaðan er nafnið á ritgerð-
■nni komið. Almennt virðist það duga
flestum lögregluþjónum að vera karl-
maður til að vera tekinn í hópinn hjá fé-
lögum sínum, burtséð frá öðrum eigin-
leikum viðkomandi. Þegar yfirlýstur
hommi gengur í lögregluliðið mun það
líklega skipta máli hversu „mikill“ karl-
maður hann er, eða eins og einn við-
mælandi minn orðaði það þá myndi
fyrir.
En þrátt fyrir þetta hef ég trú á að
hlutirnir haldi áfram að breytast í rétta
átt. Ólíkt því sem ég hélt áður en ég
byrjaði að vinna þar þá er ekki mikið
um hasar í starfmu. Auðvitað koma upp
ÞAU SEM HÖFÐU STARFAÐ MEÐ KONU, T.D. VERIÐ Á BÍL SAMAN Á VÖKTUM,
HÖFÐU EKKERT VIÐ KONUR AÐ ATHUGA SEM STARFSFÉLAGA, ÞÓ KÖRLUNUM
ÞÆTTI HUGMYNDIN UM TVÆR KONUR SAMAN Á BÍL AÐ VÍSU EKKI HEILLANDI.
dæmið ekki ganga upp ef hann væri
„aumingi“.“
Framtíðin
„Allt í allt var ég nokkuð ánægður með
rannsóknina. Það kom mér þó á óvart
hversu mikil tregða var hjá lögreglu-
valdinu gagnvart því að láta skoða sig.
Þetta er rótgróin stofnun sem vill
kannski ekki hleypa utanaðkomandi of
mikið inn á sig. Annað sem kom mér á
óvart var hið neikvæða viðhorf í garð
kvenna sem ég lýsti hér áðan. Ég hafði
fyrirfram gert ráð fyrir að einhverjar
efasemdir væru uppi um hæfni lög-
reglukvenna hjá körlunum, en þær efa-
semdir reyndust mun meiri en ég hafði
búist við og afstaðan gagnvart konunum
mun harðari en ég hafði gert mér grein
vandamál öðru hverju, en ég áttaði mig
fljótlega á því að lögreglustarfið er fyrst
og fremst þjónustustarf og kom það við-
horf einnig fram hjá viðmælendum
mínum. Því þykir mér Iíkamlegur styrk-
ur alls ekki mikilvægasti eiginleiki lög-
regluþjóna og ég vona að áherslan á
hann meðal lögregluþjóna dvíni með
tímanum. Lipurð í samskiptum og það
að geta haldið ró sinni í erfiðum að-
stæðum skiptir oft meira máli enda
alltaf betra að geta komið í veg fyrir átök
heldur en að þurfa að yfirbuga einstak-
linginn. Þar sem þessir eiginleikar til-
heyra konum ekkert síður en körlum, þá
held ég að þróunin á næstu árum verði
bara nokkuð jákvæð.“
VERA flutt
*
Enn einu sinni hefur aðsetur VERU verið
flutt og er nú að Laugavegi 59, Kjörgarði,
4. hæð. Hæðin nefnist Kvennagarður en
þar eru sjö skrifstofuherbergi sem öll eru
leigð af konum eða kvennafyrirtækjum.
Sameiginlegt rými er nýtt af ölllum og
Þar hefur bókasafni með merkum bók-
um um femínisma verið komið fyrir og
mun senn verða skráð til útlána. Einnig er
a hæðinni salur sem býður upp á mögu-
leika til fundahalda.
Aðstandendur Kvennagarðs hafa í
hyggju að bjóða upp á ýmsa starfsemi á
hæðinni en meðal leigjenda eru Kvenna-
kirkjan, sem býður upp á fjölbreytt nám-
skeið um kvennaguðfræði í dagsins önn,
Fiölmenning hf. sem hefur m.a. námskeið
1 íslensku fyrir útlendinga og Lífafl sem
hýður upp á námskeið í hugfræði og slök-
Un- Einnig eru á hæðinni sálgreinir og
hlómadroparáðgjafi.
Sjóstangaveiði.
Kvöldferðir.
Veisluferðir.
Skipuleggjum hópferðir
um Reykjanes með leiðsögn.
hva'asfcoí
Keflavík
Upplýsingar f síma
421 7777
Grænt númer 800 8777
Fax.421 3361
GSM 896 5598
www.dolphin.is • e-mail: moby.dick@dolphin.is
(enawik
vera / karlmennska í lögreglunni / 1. tbl. / 2003 / 59