Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1928, Page 71

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1928, Page 71
JÓN TRAUSTI 37 umim,. frosnar í hel. Mestur hluti eggjanna varð að fúleggjum. Um manneskjurnar ætti eg sem fæst að tala. Ef eg segði alt, sem satt er, mundu fáir trúa mér. Þar að auki mjundi mér vera borið á brvn, að eg níddi landið og gerði of mi'kið úr harðindunum. Eng- inn veit til fullnustu, hvað það er að eiga bágit, nema sá, er sjálfur hefir reynt það. Hjá þessari móðursjúku þjóð má ekkert satt segja,-—um að gera að dylja allan sannleika, sem mönnum finst sár í svipinn. Því fer margt sem það fer. Eg hefi þó ekki þagað. Það, sem læknirinn segir í sögunni ‘Þorradægur’ stendur á dýr- keyptri reynslu frá þessum árum. Fátæklingarnir flosnuðu upp hópum .saman. Heilar fjölskvld- ur fóru á sveifina eða verganginn —sem eiginlega var eitt og liið sama. Eg man eftir, þegar þess- ir aumingjar voru að dragast bæ 1‘rá bæ, bláir í framan af megurð og máttleysi, mieð skyrbjúginn í tannholdinu og sinakreppu í hnés- bótunum—iþar til þeir lögðust fyrir á einhverjum bænum, kom- ust ekki lengra. Þar urðu þeir að deyja eða hjarna við. Flestir hjörnuðu við og—voru sendir til Ameríku um sumarið. Engin björg fékst, nerna fáeinir gamlir, óíseigir landselir, sem skriðu upp á ísinn og voru rotaðir þar. Ketið af þeim var svart eins og tjara og’ gat aldrei soðnað. En það þótti gott samt, því að það var þó nýtt. Saltketið, sem menn áttu frá vetrinum, brendi menn í munninum, og hangikjötið gátu menn ekki melt, þótt til væri, því allir voru í raun og veru orðnir veikir af liarðréttinu. 0g svo var þetta ekki til nema hjá þeim, sem bezt bjuggu. Hinir urðu að láta sér nægja að sleikja um beinin af skepnunum, sem) þeir mistu, eða leita sér saðningar í skemdum eggjum eða seigu selaketi. Kaup- staðurinn var allslaus — engiim kornmatur af neinu tægi, ekkert kaffi, enginn sykur. Ekkert — alls ekkert, sem fólkið þarfnaðist, ekki svo mikið sem) .saltlúka til að sá í matinn. Ekkert brennivín lieldur eða tóbak. Það þykir ef til vill goðgá, að minnast á tóbalc og brennivín í þessu sambandi. En eg held þó, að ekki héfði mörgum manninum) veitt af þeirri hýrgun, sem þetta veitir hvorttveggja, því að ekki var ástand sálarinnar stórum betra en líkamans. Þung- lyndi, deyfð og vonlevsi fylgja æ- tíð harðrétti og skyrbjúg. Menn geta nú sjálfir liugsað sér ástand- ið..... En þegar neyðin er stærst, er hjálpin næst. Það fréttist til kaup- skipa, sem láu í íslausum sjó sunn- an undir Lang-anesinu. Meðal þeirra var skipið til Raufarhafn- ar. Hin skipin voru til Almreyr- ar og Húsavíkur...... Þegar ekki þótti fært að sigla þeim inn í ís- inn, var ekki mikil von um að ‘Kristín’ litla, Raufarhafnarskip- ið, kæmist langt. En mikil var samt þráin eftir skipinu, sem hafði alt það innanborðs, sem menn þörfnuðust svo sárlega, mönnum og skepnumj til bjargar. Einkum voru það þó skepnurnar, sem lífið lá á að bjarga, ef í kornmat næð- ist. Fólkið á Sléttunni, sem margt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.