Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1928, Side 160

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1928, Side 160
126 TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA er enn væru óafgreidd. Þingi frestaS til kl. 8.30. Sjöundi þingfundur var settur kl. 8.30 sama dag. Hófst hann meö því að herra Sigfús Halldórs frá Höfnum söng lang- an flokk íslenzkra þjóðsöngva, en honum til aðstoðar lék ungfrú Þorbjörg Bjarna- son á píanó. Séra Jónas A. Sigurðsson flutti langt og rækilegt erindi um menn- ingargildi íslenzkrar tungu og fræða og þörfina á þjóðræknisstarfsemi á meðal vor. Að lokum flutti Sigurður Jóhanns- son skáld kvæði. Stóð skemtun þessi til kl. 9.40 að aftur var tekið til þingstarfa. Fundarbók lesin og samþykt. Kenslumál:—Jón J. Bildfell las upp álit nefndarinnar, er það mál hafði með hönd- um sem hér fylgir: “Vér, sem settir vorum í nefnd til að athuga kenslumálin leyfum oss að leggja til: 1. Að áfram verði haldið að styðja og styrkja kenslu í íslenzku á meðal barna og unglinga í Winnipeg og öðrum stöð- um þar sem því verður viðkomið, og að stjórnarnefndinni sé veitt full heimild til að verja fé úr félagssjóði kenslunni til stuðnings, eftir því sem kringumstæður leyfa. 2. Þingið lætur í ljósi ánægju sína og þökk fyrir framkvæmdir þær sem orðið hafa í sambandi við kenslu í íslenzkri tungu við gagnfræðaskóla í Manitobafylki og felur stjórnarnefndinni að veita því máli alt það fylgi, sem hún getur á kom- andi ári. 3. Að þriggja manna milliþinganefnd sé kosin til að leita fyrir sér með, og at- huga nýja vegi, sem gæti leitt til hvatn- ingar fyrir ungt fólk vor á meðal að gefa sig meir við námi íslenzkrar tungu og íslenzkra fræða en verið hefir. /. /. Bíldfell, J. P. Sólmundsson, Ragnar Stefánsson.” Samþykt var að ræða frumvarpið lið fyrir lið. Allir liðirnir samþyktir. Stungið upp á þessum í milliþinganefndina: séra Runólfi Marteinssyni, séra J. P. Sól- mundssyni og dr. Sig. Júl. Jóhannessyni. LTppástungan samþykt. Finnbogi Hjálmarsson bar þá upp til- lögu þess efnis að Þjóðræknisfélagið gangist fyrir því, að gefin séu út barna- blöð með báðum íslenzku blöðunum “Hkr.” og “Lögb.” Árni Eggertsson studdi. Tillagan samþykt og málinu vísað til stjórnarnefndar. Fjármálanefndin lagði fyrir þingið svolátandi tillögu um styrkbeiðni deildar- innar “Brúin” í Selkirk: Háttvirti forseti, heiðraða þing:— Fjármálanefnd yðar hefir reynt að gera sér grein fyrir þvi hve afar þarflegt það er að halda uppi kenslu í íslenzkum söng og íþróttum meðad íslendinga og vill hér með hvetja allar deildir til þess að gera það af ítrasta megni. Hinsvegar finnur nefndin til þess, hve aðalfélaginu er um megn að styðja slíkt að nokkrum mun, fjárhagslega, eða svo að styrkurinn komi nokkurnveginn jafnt niður á deildirnar. Eins og mönnum er Ijóst, eru aðal inn- tektir félagsins andvirði fyrir auglýsingar í Tímaritinu, með öðrum orðum, tillög fé- lagsmanna ekki lengur til, að öðru leyti en því, að þeir kaupa ritið. Öllum deild- um er nú gefið hálft andvirði þess, en aftur á móti er félagið að færast meira og meira í fang, með ári hverju, hvað útgjöld snertir. Samt sem áður viljum vér leggja til, að deildinni “Brúin” í Sel- kirk sé veittir $40.00 á þessu fjárhagsári til styrktar kenslumálum. 23. febr. 1928. A. P. Jóhannsson, J. Húnfjörff, Tobías Tobíasson.” Árni Eggertsson gerði þá breytingar- tillögu við nefndartillöguna að fjárveit- ingin sé liækkuð upp í $50.00, stutt af B. B. Olson. Breytingartillagan samþykt og svo nefndarálitið með áorðinni breytingu. Mrs. I. E. Inge skýrði frá viðgangi Þjóðræknisfél. í Foam Lake bygð. Benti þinginu á að tilhlýðilegt væri að félagið byði dr. Helga Péturss að heimsækja íslendinga hér, þegar hann hefði tíma og tækifæri til. A. P. Jóhannsson lagði þá fram tillögu fjármálanefndar í íþróttamálinu: Háttvirti forseti og þing:— Vér leggj-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.