Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Blaðsíða 103
NOKKUR VESTUR-ISLENSK TÓNSKÁLD
85
og þykir ágætur leiðari söngflokka og
hljórasveita; stofnaði hljómsveit í Ár-
borg og stjórnaði henni í nokkur ár,
stjórnaði lúðraflokki og kirkjusöng í
Riverton í mörg ár, og hátíðasöng-
flokk Norður-Nýja-fslands í þrjú ár.
Síðan hann flutti til Winnipeg hefir
hann stýrt söng í Fyrstu Lút. kirkjunni
í tvö ár og karlakór íslendinga að
nokkru leyti í þrjú ár.
Sigurbjörn nam raddskipunarfræði
og “kontrapunkt” bréflega hjá merk-
um hljómfræðingi í Chicago, og hefir
samið allmörg frumort sönglög og
hljómleika. Hér kemur skrá yfir flest
af verkum hans:
I. Veraldlegs efnis.
1. Sofðu unga ástin mín (Jóhann Sig-
urjónsson). Sóló með píanóund-
irleik.
2. Vögguljóð (Til Agnesar, frumort)
Sóló og píanó.
3. Vorið góða grænt og hlýtt (Jónas
Hallgrímsson) Sóló og píanó.
4. ó blessuð vertu sumarsól (Páll
Ólafsson) Karlaraddir.
5. Þið þekkið fold - (Jónas Hall-
grímsson) Blandaðar raddir.
6. Þó þú langförull legðir (St. G.
Stephansson) Blandaðar raddir.
7. Fannhvíta móðir (Benedikt Grön-
dal) Blandaðar raddir.
8. Tunglsljós (cello og píanó).
9. Skin og skuggi (tileinkað Dr. J. P.
Pálsson) “Overture” fyrir hljóm-
sveit.
10. Skrúðganga (March fyrir hljóm-
sveit).
II. Helgilög.
L Lofgjörð og bæn (úr Davíðssálm-
um) Blandaðar raddir.
2. Nú dagur þver og nálgast nótt
(Stgr. Thorst.) Blandaðar raddir.
3. Þú ljós og dagur drottinn ert (V.
Briem) Blandaðar raddir.
4. Láttu guðs hönd þig leiða hér
(Hallgr. Pétursson) Blandaðar
raddir.
5. Vertu guð faðir, faðir minn (Hallgr.
Pétursson) Blandaðar raddir.
6. Víst ertu Jesús kóngur klár (Hallgr.
Pét.) Sóló með píanó-undirspili.
7. Barnabæn (Hallgr. Pétursson) Sóló
og píanó undirs,pil.
Ennfremur hefir Sigurbjörn útsett
allmikið af íslenskum lögum í ýmis-
konar raddskipun til söngs og hljóð-
færasláttar fyrir beiðni eða til eigin
þarfa.
13. Thordis Louise Ottenson Gud-
munds er fædd í Winnipeg 16. septem-
ber 1896. Foreldrar hennar eru hjónin
Nikulás Ottenson (Össursson) og Anna
Guðmundsdóttir, föðursystir Hjartar
Lárussonar (sjá
númer 6). Lo-
vísa, eins og
hún er oftast
nefnd, fékk al-
menna mentun
í alþýðuskól-
um borgarinn-
ar og í hús-
stjórnar deild
b ú n aðarskóla
Manitaba-fylk-
is. Átta ára gömul fór hún að læra
orgelspil, og þrettán ára píanó-sípil
hjá Jónasi Pálssyni og síðar hjá Lyle
Sweatman, sem lært hafði eins og
Jónas, hjá frægum kennurum í
Þýzkalandi. Síðar varð hún að hætta
námi fyrir efnahagslegar ástæður. En
brátt fór hún að kenna sjálf, og lærði
þá jafnframt að leika á pípuorgel hjá
Fred Gee, besta organleikara Winni-