Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Blaðsíða 158
140
TIMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
Iega að ríkisritari Kanada hafi samþykt áður-
nefnda lagabreytingu.
G. J. Jónasson
Svanbjörg Sveinsson
ólína Pálsson
Ó. Pétursson
T. Isfeld
Frú Ólína Pálsson lagði til, að umræðum
og atkvæðagreiðslu um þetta mál væri frestað
til miðvikudags, þar sem nú væri dagur að
kveldi kominn. Mrs. Backman studdi tillög-
una og var hún samþykt, og fundi svo frestað
til kl. 9.30, f.h. á miðvikudag.
Fundur settur á miðvikudagsmorgunn,
kl. 9.50, fundargjörð frá síðasta fundi lesin og
samþykt. Námstyrks málið tekið til umræðu.
Dr. Beck lagði til að þriggja manna nefnd
sé sett í það mál og var það samþykt. 1 nefnd
skipaði forseti Séra Jóhann Friðriksson, Dr.
Beck, séra Egil Fafnis.
Málið um breytingu á ársgjaldi félagsmanna
var næst tekið fyrir. Séra Egill Fafnis lagði
fram álit þingnefndarinnar í því máli sem
var í einttm lið og hljóðar þannig:
Nefndarálit um Breytingu á árstillögum
Félaga og Deilda
Nefndin hefir með höndum bréf, sem form-
lega og lögum félagsins samkvæmt, hefir bor-
ið fram tilkynningu um breyting á grundvall-
arlögum félagsins, og leggur nefndin hana nú
formlega fyrir þingið.
Að 19 grein grundvallarlaga Þjóðræknis-
félags fslendinga í Vesturheimi falli burt, og
í stað hennar komi þessi grein og verði 19
grein:
Árstillaga félaga og deilda
Allir meðlimir félagsins og deildanna skulu
hafa goldið árstillög sín fyrir lok hvers fjár-
hagsárs, einstaklingar til fjármálaritara félags-
ins, en meðlimir deildanna til fjármálaritara
sinnar deildar.
Árstillög eru:
Æfifélagar í eitt skifti fyrir öll $15.00
Félagar $2.00
Ungtnenni frá 14 — 18 ára .50
Börn innan 14 ára .25
Deildir borgi til aðalfé. fyrir hvern
gildan meðlim $1.00
Fyrir ungmenni .25
Á þingi í Winnipeg 1950.
Egill Fafnis
S. Finnsson
Kristín Johnson
Jón Ásgeirsson lagði til að nefndarálitið sé
samþykt og Jónbjörn Gíslason studdi tillöguna.
Umræður urðu nokkrar um álit þingnefndar-
innar, og það svo fellt.
tltgáfumál. Þingncfndin í því máli, eða rétt-
ara sagt framsögumaður hennar Jón Ásgeirs-
son, lagði álit þeirra nefndar aftur fyrir þing-
ið að viðbættum 5 lið sem þannig hljóðaði:
"Þingið gefi væntanlegri stjórnarnefnd leyfi
til að hækka ritlaun upp í tvo dollara ($2.00) á
síðuna, fyrir vanalegt letur, og hlutfallslega
hærra fyrir smærra letur og lagði til að liður-
inn yrði samþyktur og yrði 5 liður nefndar-
álitsins. H. T. Hjaltalín studdi tillöguna og
var hún samþykt og nefndarálitið í heild svo
samþykt.
Málið um breytingu á þingtímanum tekið
til umræðu samkvæmt ákvörðun síðasta
fundar. A. G. Eggertsson lagði til að því máli
sé frestað til næsta þings. Guðmann Levy
studdi tillöguna sem var breytingartillaga. Til-
lagan var feld. Nefndarálitið í því máli tekið
til umræðu. Umræður um málið urðu harðar
og nokkuð langar. G. J. Jónasson lagði til að
nefndarálitið sé samþykt, með þeirri breytingu,
að orðunum "ef unt er”, sé bætt inn í seinni
lið nefndarálitsins var sú tillaga studd af sam-
þykt.
Ólafur Pétursson lagði til og Walter dómari
Líndal studdi, að umræðum i málinu sé lok-
ið. Samþykt.
Gunnar Sæmundsson gjörði tillögu um, að
væntanlegri stjórnarnefnd Þjóðræknisfélagsins
sé falið að skrásetja þessa breytingu á lögum
félagsins, hjá Ríkisritara Kanada sem allra
fyrst til þess að hún öðlist gildi og að athuga
aðrar breytingar á lögum sem nauðsynlegar
kynnu að vera í sambandi við hana. A. Egg-
ettson studdi tillöguna og var hún samþykt.
Ólafur Pétursson stakk úpp á og Böðvar
Jakobsson studdi, að næsta þjóðræknisþing sé
haldið í Winnipeg. Samþykt. Fundi frestað til
kl. 1.30 e. h.