Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1950, Blaðsíða 154
136
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ISLENDINGA
4. Nefndin leiðir athygli að því, að Þjóð-
ræknisfólagið hefir í vörzlum sínum mikinn
forða lesbóka, við hæfi barna og unglinga og
mælir sterklega með því að þær verði notaðar
við íslenzku kensluna.
5. Nefndin leiðir athygli stjórnarnefndar
og deilda að því, að nú fæst bráðlega í íslenzku
bókabúðinni, bók íslenzkra söngva tilvalin fyr-
ir söngkenslu í islenzku skólunum og mælir
með því að hún verði útveguð til skólanna.
6. Þingið telur æskilegt að útvegaðar séu
skuggamyndir í litum til sýningar í skólunum.
Ingibjörg Johnson
Gunnar Sæmundsson
Kristín Pálsson
Egill H. Fáfnis
John B. Johnson
Þorsteinn Gíslason lagði til að nefndarálitið
sé rætt lið fyrir lið, stutt af Einari Magnússyni.
Samþykt.
1. liður samþyktur.
2. liður. Uppástunga frá G. J. Oleson og
Einari Magnússyni um að hann sé samþyktur.
Breytingar tillaga frá séra E. H. Fáfnis og
Sigurði Baldvinssyni, um að liðnum sé skift.
Breyting við þá breytingar tillögu frá J. J.
Bíldfell og Þorsteini Gíslasyni um að liðnum
se vísað til fjármálanefndar og var hún sam-
þykt.
3. liður. Uppástunga frá séra E. H. Fáfnis og
Ólafi Péturssyni um að liðurinn sé samþyktur.
Breytingartillaga, fiá Mrs. Backmann sem að
Miss Vídal studdi um að liðnum sé vísað til
fjármálanefndar þingsins var samþykt.
4. Liður samþyktur, 5 og 6 sömuleiðis.
Jónbjörn Gíslason flutti allangt erindi og
mælti með því að Þjóðræknisfélagið styrkti
Óla Kárdal fjárhagslega við söngnáxn hans.
tjtgáfumál
Nefndin í útgáfumálum leyfir sér að gera
eftirfarandi tillögur.
1. Þingið þakkar Gísla Jónssyni ritstjóra
Tímaritsins Þjóðræknisfélagsins ágætt starf
hans að ritinu.
2. Þingið vottar Mrs. P. S. Pálsson þökk fyr-
ir áhugasamt og árangursríkt starf hennar, við
söfnun auglýsinga og sömuleiðis tjáir þingið
þakkir sínar til allra þeirra sem stutt hafa rit-
ið með því að auglýsa í því.
3. Þingið þakkar Þjóðræknisfélaginu á Is-
landi fyrir ágæta samvinnu og mikilvæga að-
stoð við útbreiðslu Tímaritsins sem að félagið
kaupir f hundruðum eintaka og útbýtir til
meðlima sinna.
4. Þingið felur væntanlegri stjórnarnefnd
að annast útgáfu ritsins á komandi ári, eins
og að undanförnu, ráða ritstjóra og sjá um
framkvæmdir allar í þvf sambandi.
Jón Ásgeirsson
H. T. Hjaltalín
Mrs. F. Lyons
Stungið var upp á að nefndarálitið væri
ra tt lið fyrir lið og var það samþykt.
Fyrsti liður samþyktur; annar, þriðji og
fjórði liður sömuleiðis, en áður en nefndar-
álitið var samþykt í heild kvaddi Gísli Jóns-
son, ritstjóri Tímaritsins sér hljóðs og benti
á að tími væri kominn til að athuga ýmislegt
í sambandi við útgáfu ritsins, svo sem ritlaun,
sem væru nú orðin óheyrilega lág í saman-
burði við það sem almennt gerðist. Einnig
benti hann á, að sumir af höfundum þeim
sem í ritið skrifuðu, vildu fá afrit af ritgjörð-
um sínum og lét í Ijósi efa sinn um, hvort að
sanngjarnt væri að ætlast til að þeir borguðu
fyrir það sjálfir. Eftir nokkrar umræður var
álitinu vísað aftur til nefndarinnar til frekari
athugunar.
Háskólamálið
Forseti las bréf frá Dr. P. H. T. Thorláksson
forseta söfnunar nefndarinnar í því máli, þar
sem að hann tók fram, að sökum fjarveru
gæti hann ekki mætt á jnnginu, bað þvf allra
heilla og tók fram, að ungfrú Margrét Péturs-
son skrifari fjársöfnunar nefndarinnar mundi
mæta á þinginu, ásamt þeim Walter Lindal
dómara, og G. L. Jóhannssyni konsúl og gefa
skýrslur um störf fjársöfnunar nefndarinnar.
Úngfrú Margrét flutti skýrslu sína sem var
skýr og skilmerkileg.
Waulter Líndal dómari las upp eftirfarandi
reglugerð og ákvæði sem fjársöfnunamefndin
hafði samið. Grettir L. Jóhannsson las og lagði
fram aðra reglugjörð og ákvæði í sambandi
við fjársöfnun, sem fylgir, og gerði uppá-
stungu og var hún samþykt.