Uppeldi og menntun - 01.07.2011, Blaðsíða 121
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (2) 2011 121
anna-lind Pétursdóttir
Menntavísindasviði Háskóla íslands
Uppeldi og menntun
20. árgangur 2. hefti 2011
Með skilning að leiðarljósi
Dregið úr langvarandi hegðunarerfiðleikum með virknimati
og stuðningsáætlunum
Virknimat og stuðningsáætlanir eru gagnreyndar aðferðir við meðferð hegðunarerfiðleika nem-
enda . Markmið þessarar rannsóknar var að meta hvaða breytingar yrðu á hegðunarerfiðleikum
nemenda í leik-, grunn- og framhaldsskólum þegar háskólanemar á námskeiði um hegðunar- og
tilfinningaerfiðleika barna beittu virknimati og stuðningsáætlunum á vettvangi . Þátttakendur
í rannsókninni voru 49 nemendur (fjórar stúlkur og 45 piltar) á aldrinum 3–20 ára, með
langvarandi hegðunarerfiðleika . Samantekt á beinum áhorfsmælingum sýndi að truflandi
hegðun nemendanna minnkaði um 75%, árásarhegðun um 88% og virk þátttaka í bekkjar- eða
deildarstarfi jókst um 92% hvað snerti miðgildi meðaltala . Wilcoxon-próf hjá þeim hópum sem
höfðu næga þátttakendur sýndu tölfræðilega marktækar breytingar á miðgildum meðaltalanna .
Aðlagaðar áhrifsstærðir reyndust stórar (d = 0,9 til 2,5) . Frekari rannsókna er þörf, m .a . til að
meta langtímaáhrif .
Efnisorð: Hegðunarerfiðleikar, virknimat, íhlutun, hagnýt atferlisgreining, nemendur
inn gang ur
Frá árinu 2009 hafa háskólanemar í uppeldis- og menntunarfræðum í framhaldsnámi
við Menntavísindasvið Háskóla Íslands átt kost á fræðslu um framkvæmd virkni-
mats (e. functional behavioral assessment) og stuðningsáætlana í valnámskeiði um
hegðunar- og tilfinningalega erfiðleika. Einstaklingsmiðuð stuðningsáætlun byggð á
virknimati hefur reynst vel til að draga úr alvarlegum hegðunarerfiðleikum nemenda.
Virknimat er aðferð til að ákvarða áhrifaþætti á óæskilega hegðun einstaklings og
finna út tilgang hennar eða virkni (e. function) fyrir einstaklinginn. Markmiðið með
þessari rannsókn var að kanna hvaða breytingar yrðu á langvarandi hegðunarerfið-
leikum nemenda í leik-, grunn- og framhaldsskólum þegar háskólanemarnir beittu
þessum aðferðum sem starfandi kennarar eða í samstarfi við kennara á vettvangi.