Uppeldi og menntun - 01.07.2011, Blaðsíða 80
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (2) 201180
horft Um öxl
leika sér og slappa af. Í eftirfarandi dæmi ræða Sólveig og Anna saman um það sem
þeim fannst skemmtilegast.
Anna: Mér fannst skemmtilegast að perla og fara í mömmó.
R.: Já.
Sólveig: Ég þoli ekki mömmó.
…
R.: Þannig að, Anna, þér fannst skemmtilegast að perla og fara í mömmó?
Anna: Já. En aðeins skemmtilegra að fara í mömmó.
…
R.: En, Sólveig, hvað fannst þér skemmtilegast í leikskólanum?
Sólveig: Mér finnst voða skemmtilegt að mála og líka að vera í þarna, hvað heitir það,
þarna stóru kubbunum.
Þegar sjónarmið barnanna voru kynnt leikskólakennurunum ræddu þeir um það sem
börnin töluðu ekki um. Þau minntust ekki á að atburðir, sem kennararnir höfðu lagt
sig fram um að undirbúa vel, hefðu verið skemmtilegir eða áhugaverðir, eins og þema-
vinna sem þeir töldu börnin hafa haft mikla ánægju af. Börnin höfðu fengið bæklinga
með sér heim með skráningum, teikningum og myndum frá þessari þemavinnu en
samt sem áður minntust þau ekki á þetta þegar þau rifjuðu upp leikskóladvölina.
Leikskólakennari 1: Það minntist enginn á þemastarfið nema beinagrindurnar.
Leikskólakennari 2: Það kom mér dálítið á óvart.
…
R.: Þau minnast ekki mikið á það sem er þunginn í skipulögðu starfi.
Leikskólakennari 2: Það sem okkur finnst … alveg „kreisí“ og okkur fannst þau ættu
að tala aðeins um það en það stendur ekkert upp úr.
Leikskólakennari 1: Og það er það sem þau eiga heima hjá sér: Myndir og skráningar
og það sem hefur fylgt þeim heim.
R.: Þau tala mest um vinina.
Leikskólakennari 1: Það er greinilega bara aðalmálið. En þegar maður er með þeim í
þema þá eru þau … þú veist, þau eru spennt [og spyrja] „Er fundur hjá okkur í dag?“.
Leikskólakennari 3: Þannig að það skiptir kannski ekki miklu máli hvað er gert með
þeim heldur að þau séu saman og hafi nóg pláss [hlær].
Neikvæð reynsla
Þegar börnin voru spurð hvort það væri eitthvað sem þeim líkaði ekki í leikskólanum
eða hvort þau hefðu einhvern tíma verið leið voru svör þeirra nokkuð fjölbreytt. Mörg
börnin svöruðu því til að þau myndu ekki eftir neinu sem þau hefðu verið leið yfir í
leikskólanum. Stúlkan í dæminu hér að neðan sagðist ennþá sakna leikskólans.
Sólrún: Ég sakna leikskólans ennþá.
R.: Já.
Sólrún: Ég er oft að segja við mömmu og pabba: Mig langar að hætta í skóla og byrja
aftur í leikskóla.