Uppeldi og menntun - 01.07.2011, Qupperneq 128
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 20 (2) 2011128
dregið úr hegðUnarerfiðleikUm
aðfErð
Þátttakendur
Þátttakendur voru 49 nemendur (45 piltar og fjórar stúlkur) í leik-, grunn- og fram-
haldsskólum. Þeir voru valdir eftir hentugleika hvers teymis fyrir sig og flestir (38)
búsettir á höfuðborgarsvæðinu. Nemendurnir voru á aldrinum 3–20 ára (meðaltal 9,5
ára) og höfðu 1–18 ára sögu um hegðunarerfiðleika (meðaltal 3,8 ára). Leikskólabörnin
voru ellefu (átta piltar og þrjár stúlkur), 3–6 ára, að meðaltali 4,1 árs. Grunnskólanem-
endurnir voru 36 talsins (35 piltar og ein stúlka), 6–16 ára, að meðaltali 10,6 ára. Fram-
haldsskólanemendurnir voru tveir piltar, 17 og 20 ára (að meðaltali 18,5 ára). Þrettán
þátttakendur voru með greiningu um athyglisbrest með ofvirkni, níu með almenna
eða sértæka námserfiðleika, tveir með athyglisbrest, tveir með kvíðaröskun, tveir með
röskun á einhverfurófi, einn með einhverfu og einn með þunglyndi. Níu nemendur
voru á lyfjum vegna þessara raskana, flestir á metylfenídat vegna athyglisbrests með
ofvirkni.
Aðstæður
Mælingar og íhlutun fóru fram í þeim aðstæðum þar sem mest bar á erfiðri hegðun
viðkomandi þátttakanda. Hjá leikskólabörnunum fóru mælingar og íhlutun fram á
leikskóladeildinni (hjá átta þátttakendum), í fataklefa (hjá fjórum þátttakendum) og/
eða á útisvæði (hjá einum þátttakanda). Hjá grunnskólanemendum fóru mælingar og
íhlutun fram í tímum hjá umsjónarkennara (hjá 33 þátttakendum) eða hjá sérgreina-
kennara (hjá þremur þátttakendum). Hjá nemendum í framhaldsskóla fóru mælingar
og íhlutun fram í sérstofu fyrir nemendur sem þurftu stuðning í námi eða á göngum
skólans.
Mælitæki
Teymi höfðu aðgang að rafrænum útgáfum af skráningarblöðum fyrir tímalengd þátt-
töku og fyrir tíðni truflandi hegðunar eða árásarhegðunar með skýrum, hlutlægum
skilgreiningum, en var frjálst að útfæra blöðin eftir þörfum. Truflandi hegðun var skil-
greind sem hreyfing, hljóðamyndun eða önnur áreiti sem gerðu nemanda eða sam-
nemendum erfitt fyrir að læra eða kennara erfitt fyrir að kenna. Skráð var hvert tilvik
þar sem nemandi áreitti aðra, talaði hátt án leyfis, henti hlutum, tók hluti frá öðrum eða
framkallaði hávaða. Árásarhegðun var almennt skilgreind sem ógnandi eða ofbeldis-
full hegðun þar sem nemandi beitti líkamlegum styrk, raddstyrk eða orðum til að særa
aðra. Skráð var hvert tilvik þar sem nemandi hrinti, sló, kleip, hárreytti, beit, sparkaði,
hrækti, henti hlutum í einhvern, ýtti við húsgögnum þannig að þau duttu um koll eða
notaði ógnandi, særandi eða dónalegt orðbragð. Virk þátttaka var almennt skilgreind
sem hegðun í samræmi við fyrirmæli kennara eða leiðbeiningar um verkefni og var
mæld svo lengi sem nemandi vann verkefni, sýndi samvinnu við aðra, rétti upp hönd
eða náði í hluti tengda verkefni.