Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1994, Page 11

Læknablaðið - 15.10.1994, Page 11
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 359 fyrir karla og 120g/l fyrir konur (14), fannst vaxandi tíðni blóðrauðaskorts fyrir bæði kyn með auknum aldri (mynd 3). Petta var sérstak- lega greinilegt fyrir karlana þar sem sjá mátti veldisrænan vöxt blóðrauðaskorts með hækk- andi aldri og yfir 25% tíðni blóðrauðaskorts meðal karla 80 ára og eldri. Andstætt þessu mátti sjá að konur á aldrinum 20 til 50 ára höfðu um fjórum til fimm sinnum meiri tíðni blóðrauðaskorts en karlar á þeim aldri. Pegar áhrif nokkurra þátta, sem gátu hugs- anlega hafa umbylt eða skapað breytingar á Hb-gildum, voru könnuð kom í ljós sterk nei- kvæð fylgni milli Hb og sökkgilda. Næst á eftir kyni hafði sökkið mest áhrif á Hb-styrkinn en MCV hafði miklu minni áhrif og aðallega hjá konum. Lítil áhrif á Hb-breytingar mátti rekja til tilvísandi lækna og enn minni til kreatíníns og heildarprótína í sermi. Meðalgildi Hb eftir aldri og kyni, þegar tekið hefur verið tillit til framangreindra áhrifa, eru sýnd á mynd 4 með upphaflegu Hb-gildunum. Þegar umreiknuðu Hb-gildin samkvæmt jöfnu {2}, þar sem gert er ráð fyrir að MCV=90 og kreatínín og prótín séu innan viðmiðunarmarka, voru borin saman við upphaflegu gildin, kom í Ijós að umbyltandi áhrif höfðu verið til staðar. Meðalgildi Hb eftir aðhvarfsrannsóknina sýndu samt sem áður að 6,8g/l lækkun hjá körlum hafði átt sér stað frá sextugsaldri og fram yfir áttrætt. Þetta var öf- ugt við marktæka hækkun Hb-gilda (2,5%) umreiknaða með sama hætti hjá konum í sömu aldurshópum og þar virtist hækkunin byrja fyrir 60 ára aldurinn. Það sést einnig á mynd 4 að tölfræðileg meðhöndlun og útilokun gilda utan viðmiðunarmarka hafði mest áhrif í elstu aldurshópunum. Þegar leiðrétt hafði verið fyrir umbyltandi (confounding) þáttum voru áhrif alduri;kyn-breytunnar ennþá marktæk með F-gildi = 39 og p = 0,003. Umræða Hægfara lækkun á Hb-styrk í blóði með hækkandi aldri hefur oftast, en ekki alltaf, verið niðurstaðan þegar hópar aldraðra hafa verið kannaðir með tilliti til þess og hefur þetta verið meira áberandi meðal karla (1). í könnun okkar höfum við hins vegar fundið marktæka hækkun hjá konum við hækkaðan aldur og virðist hún hefjast fyrir tíðahvörf, en hjá körl- um hefst lækkun eftir 60 ára aldur. Ýmsir þættir eins og erfðir, kynstofn, menn- ing og umhverfi gætu haft áhrif á niðurstöður. Age groups (years) Mynd 3. Algengi blóðraudaskorts hjá mismunandi aldurs- hópum karla og kvenna. Blóðrauðaskortur hefur verið ákvarðaður samkvœmt stöðlum, sem WHO (11) hefur mælt með: < 13 g/lfyrir karla og < 12 g/l fyrir konur. 155 - Men Age groups (years) Mynd 4. Meðalgildi blóðrauðastyrks í blóði hnituð á móti aldri fyrír (-■-) og eftir (-x-) aðhvarfsrannsókn (multiple regression analysis). Einstaklingar sem höfðu gildi utan við- miðunarmarka einhverra þeirra breyta sem mældar voru (sjá töflu), voru ekki teknir með. Þannig voru 12.002 einstaklingar af16.332 í lokarannsókninni. Gagnstœðar tilhneigingar Hb- styrks hjá köríum og konum eftir aldri koma vel í Ijós eftir tölfrœðilegu meðhöndlunina. Mismunandi rannsóknaraðferðir eða mismun- andi þjóðerni gætu einnig hafa gert niðurstöð- ur óhæfar til samanburðar. íslendingar ættu að hafa haft jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu sem hefur að mestu verið rekin af opinberu fé. Meðalævi íslendinga á árinu 1989 var 75,71 ár hjá körlum og 80,29 ár hjá konum (15). Mikill fjöldi einstaklinga í könnun okkar hefur í för með sér að tiltölulega litlar breyting- ar verða tölfræðilega marktækar. Blóðrann- sókn með öllum helstu þáttum rauðra blóð- korna og sökki var gerð á um það bil 80%

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.