Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1994, Page 37

Læknablaðið - 15.10.1994, Page 37
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 383 var undanskilin svo og skyndidauði hjá ung- börnum voru eftir 195 sjúklingar með hjarta- og öndunarstöðvun. Af 195 sjúklingum voru 149 (76%) fluttir á sjúkrahús en 46 (24%) voru úrskurðaðir látnir á staðnum af lækni neyðarbílsins. Af þessum 195 sjúklingum voru 64 (33%) lagðir inn á hjarta- eða gjörgæsludeildir og 31 (16%) var síðan útskrifaður af sjúkrahúsi. Langflestir voru lagðir inn á Borgarspítalann og útskrifuðust því flestir þaðan eða 27 sjúk- lingar. Af Landspítalanum útskrifuðust þrír sjúklingar og einn af Landakoti. Langflestir sem útskrifuðust eftir hjarta- og öndunarstöðvun náðu sér vel og voru aðeins tveir þeirra taldir hafa hlotið alvarlegan tauga- skaða. Af þeim 31 sjúklingi sem útskrifuðust lifandi í okkar rannsókn voru tveir útlending- ar, það er einn Þjóðverji og einn Svíi. Aldnr: Meðalaldur var 66 ár (32-89 ára). Meðalaldur þeirra sem útskrifuðust lifandi var 63 ár (41-86 ára). Karlmenn voru 148, það er 76% og konur 47 eða 24%. Útkallstími: Meðalútkallstími fyrir allan hóp- inn á tímabilinu 1987-1990 var 4,6 mínútur (ein til 11 mínútur). Meðalútkallstími fyrir þá sem lifðu áfallið af var 4,1 mínúta (tvær til 10 mínút- ur). TíÓni hjarta- og öndunarstöðvunar á liverri klukkustund og í hverjum tnánuði: Þegar litið er á fjölda útkalla neyðarbílsins á árunum 1989- 1990, það er þau ár sem neyðarbíllinn starfaði allan sólarhringinn sést að hjarta- og öndunar- stöðvun er mjög fátíð yfir hánóttina, það er frá 02 til 06 (mynd 2). Fjöldi tilfella eftir mánuðum skiptist þannig að fæst voru þau í janúar og febrúar og yfir sumarmánuðina (mynd 3). Flest útköll voru í mars og september. Það kom á óvart að útköll voru fæst í janúar og viðhlýt- andi skýring á því liggur ekki fyrir. Hjartsláttartruflanir: Fyrsta rit hjá sjúkling- um með hjarta- og öndunarstöðvun (mynd 4) sýndi að rafleysa greindist oftast í upphafi eða í 92 tilfellum (47%), sleglatif í 77 tilfellum (40%), sleglahraðsláttur í fjórum tilfellum (2%) og aðrar hjartsláttartruflanir svo sem hægataktur og samdráttarleysa í 22 tilfellum (11%). Hjartsláttartruflanir í upphafi (mynd 5) hjá þeim 31 sjúklingi sem útskrifuðust skiptust þannig að rafleysa var í sex tilfellum, sleglatif í 23 tilfellum og sleglahraðtaktur í tveimur til- fellum. Vitni að hjarta- og öndunarstöðvun: Vitni Fjöldi Tími sólarhrings Mynd 2. Dreifing útkalla neyðarbílsins eftir tíma sólarhrings 1987-1990. Mánuður Mynd 3. Dreifing útkalla neyðarbílsins eftir mánuðum. Fjöldi hraðsláttur Mynd 4. Hjartsláttartruflanir greindar í upphafi hjá öllum sjúklingum með hjarta- og öndunarstöðvun.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.