Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1994, Síða 67

Læknablaðið - 15.10.1994, Síða 67
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80 407 Tillaga um skipulag læknafélaganna Núverandi skipan Læknafé- lags Islands í svæðafélög er fyrirkomulag sem átti vel við fyrir nokkrum áratugum en er í dag ófullnægjandi fyrirkomu- lag. Hins vegar hafa menn enn ekki getað komið sér saman urn aðra skipan. Eftirfarandi skil- yrði þyrfti að uppfylla: 1. Skipulagið þyrfti að vera sem réttlátast, það er að segja taka mið af sérgreinum og búsetu eins og hún er í dag. 2. Þó þarf að sjá til þess að fá- mennir hópar, til dæmis læknar á Vestfjörðum, fái einnig fulltrúa. 3. Reglur þurfa að vera raun- hæfar og taka mið af vakta- bindingu og dreifðri búsetu dreifbýlislækna, til dæmis eru opnir aðalfundir ekki góð lausn af framangreindri ástæðu. 4. Skipulag þarf að virka örv- andi en ekki letjandi á félags- starfið. 5. Skipulag má ekki stuðla að ósætti og óþarfa togstreitu. Núverandi skipulag uppfyllir ekki skilyrði eitt og hugsanlega ekki heldur skilyrði fimm (sam- anber togstreitu í LR). Tillaga meirihlutans er með sömu ann- marka og núverandi skipulag enda nánast óbreytt ástand. Til- laga Magnúsar R. Jónassonar uppfyllir skilyrði fjögur, en ekki skilyrði þrjú, þar sem erfitt er að fylgjast með því hvort menn greiði athvæði í svæðafélagi eða í fagfélagi, auk þess sem það ylli óþarfa togstreitu, sem væri brot á skilyrði fimm. Þessa ann- marka á tillögu Magnúsar má sníða af með því að breyta ákvæðinu um að menn þurfi að velja hvort þeir kjósi í svæða- eða fagfélög, en láta menn í staðinn kjósa bæði í svæða- og fagfélög. Félagatalið þyrfti aðeins að innihalda nafn fagfé- lags og svæðafélags sem eru upplýsingar sem breytast lítið og eru ekki háðar neinum kosn- Skýrslanefndarerfjallaði um skipulag LÍ starfstil- högun og umsvif var kynnt á formannaráð- stefnu félagsins 6. maí síðastliðinn. í nefndinni áttu sæti Guð- mundur J. Olgeirsson, Halldór Halldórsson, Halldór Jóhannsson, Magni Jónsson, Magn- ús R. Jónasson og Anna Stefánsdóttir sem var ritari nefndarinnar og jafnframt fulltrúi FUL. Niðurstöður nefndarinn- ar, bæði sameiginlegar og sérálit einstakra nefndarmanna, voru birt- ar í heild í Fréttabréfi lækna 6/94. ingum. Jafnframt kæmi upp viss samkeppni milli fag- og svæða- félaga, en þó ekki á neikvæðum nótum þar sem menn tækju ekki atkvæði hvor frá öðrum. Sigurður Gunnarsson, heilsugæslulæknir tilncfningu LR og ef til vill LA þannig að samninganefndin hafi svipaðan bakstuðning og stjórn LR hefur veitt urn árabil, en þess hefur verið gætt að í stjórn félagins sitji læknar af sjúkra- húsum borgarinnar, svo og læknar af sérfræðingastöðvum í bænum auk heimilis- og heilsu- gæslulækna. Mörgurn finnst hugmyndin uni deildaskiptingu innan LR vera aðlaðandi, en starfshópur á vegum fyrrverandi stjórnar LR kom á síðasta ári fram með tillögur í þessa veru. Þá var hug- myndin að deildirnar yrðu fjór- ar, það er deildir unglækna (al- menn deild), heimilislækna, sérfræðinga á skurð- og rann- sóknasviði annars vegar og lyf-, barna- og geðlæknissviði hins vegar. Deildirnar hefðu tölu- vert sjálfstæði, tilnefndu full- trúa á aðalfundi LÍ og í samn- inganefndir og deildastjórarnir sætu síðan í stjórn LR. Þessi deildaskipting hefði þann kost að valdið færðist enn frekar til grasrótarinnar í félaginu en nú er raunin. Ég vil þó geta þess að innan LR hefur á vissan hátt verið unnið með þessum hætti og til dæmis þótt sjálfsagt að for- menn FÍH og FUL væru full- trúar LR á aðalfundi LÍ. Mikilvægt er að læknar hug- leiði sem flestir þessi mál og ræði sín á milli. Við þurfum að finna leið, sem sátt getur orðið um meðal lækna, leið sem helst styrkir okkar samtök en veikir þau ekki. LR mun halda félagsfund, þar sem þessi mál verða til um- fjöllunar sennilega í nóvember næstkomandi fyrir aukaaðal- fund LÍ. Gestur Þorgeirsson, formaður LR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.