Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.1997, Page 6

Læknablaðið - 15.06.1997, Page 6
366 LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83: 366-7 Ritstjórnargrein Krabbameinsvaldur færist skör hærra Hvernig vitum við hvort efni eru krabba- meinsvaldar? Getum við flett slíku upp í texta- bókum og fengið að vita vissu okkar í eitt skipti fyrir öll? Samband ákveðinnar mengunar og krabbameins er í sumum tilvikum orðin svo augljós að það nægir að glugga í barnabækurn- ar eftir dæmum og má hér nefna að tóbaks- reykur leiðir til lungnakrabbameins. Það er með réttu hægt að halda því fram krabba- meinsvaldandi efni séu mismunandi. Nokkur efni hafa sýnt sig að því að geta valdið krabba- meinum eingöngu í dýratilraunum og stundum aðeins í einni dýrategund. Önnur efni eru talin geta valdið krabbameini í mönnum. Sum efni geta leitt til krabbameina þótt menn verði fyrir lítilli mengun, en urn önnur efni virðist gilda að mengunin þurfi að vera mikil og vara lengi þar til aukin krabbameinshætta kemur fram. Ein- földustu forvarnir við krabbameinum sem rekja má til mengunar efna gætu virst vera að banna notkun og meðferð slíkra efna. Þetta er oft og tíðum ekki hægt af hagnýtum ástæðum því að slík efni geta verið okkur gagnleg, svo sem eldsneyti og smurolíur, þannig að forvarn- irnar þurfa að beinast að því að vernda ein- staklinga sem vinna með eða komast í snert- ingu við efnin. Þess vegna er þörf á flokkun og mati á efnunum með tilliti til hversu mikil krabbameinshætta stafar af þeim og hvar þau koma helst fyrir. Alþjóðlega krabbameinsrannsóknarstofn- unin (International Agency for Research on Cancer, IARC) í Lyon er í fararbroddi á þessu sviði, en stofnunin er tengd Alþjóðaheilbrigð- isstofnuninni. Eitt af hlutverkum IARC er að meta og flokka efni sem gætu valdið krabba- meinum hjá mönnuni. Um 800 efni hafa verið flokkuð frá 1972 af alþjóðlegum sérfræðinga- hópum, sem stofnunin hefur kallað til sam- starfs og valið eftir því hvaða verkefni liggja fyrir. Við mat á efnum taka sérfræðingarnir saman yfirlit (monographs) (1,2) um birtar vís- indarannsóknir um efnin. Yfirlitin skiptast í fjóra meginkafla. Fyrsti kaflinn er um mengun- arupplýsingar, annar kaflinn um krabba- meinsrannsóknir á mönnurn, þriðji um krabba- meinsrannsóknir á dýrum og sá fjórði er um aðrar rannsóknir og upplýsingar sem þykja skipta máli. IARC flokkar efni í fjóra meginflokka. Flokkur 1: Efnið er krabbameinsvaldur hjá mönnum. Flokkur 2a; Efnið er sennilega krabbameinsvaldur hjá rnönnum. Flokkur 2b: Efnið er hugsanlega krabbameinsvaldur hjá mönnum. Flokkur 3: Það er ekki hægt að ákvarða hvort efnið er krabbameinsvaldur hjá mönnum og flokkur 4: Efnið er sennilega ekki krabbameinsvaldur hjá mönnum. Efni sem metin hafa verið af sérfræðinga- hópum IARC eru iðulega endurmetin á nokk- urra ára fresti eftir því sem fleiri rannsóknir eru framkvæmdar og birtar. Á síðastliðnu hausti voru nokkur efni endurmetin og verður yfir- litsskýrsla birt um matið á næstu dögum (3). Strax eftir fundinn í haust var það látið berast út (http://www.iarc.fr/publications/vol68.htm), að sérfræðingarnir töldu að nú lægju fyrir nægi- legar upplýsingar um að kristölluð kísilsýra væri krabbameinsvaldur hjá mönnum og ætti því sæti í flokki 1. Þetta var breyting frá fyrra mati á kristallaðri kísilsýru sem birt var í yfirliti árið 1987 (1). Þá var kristölluð kísilsýra metin í flokk 2a og talið sennilegt að hún væri krabba- meinsvaldur hjá mönnum, en nú var hún færð upp um flokk í ljósi nýrra rannsóknarniður- staðna. Innöndun kristallaðrar kísilsýru í formi kvarts eða kristóbalíts þegar um atvinnumeng- un er að ræða var sérstaklega nefnd. Endur- matið 1996 byggist á niðurstöðum margra far- aldsfræðilegra rannsókna sem samanlagt þóttu gefa nægilegar vísbendingar um að kristölluð kísilsýra væri krabbameinsvaldur hjá mönn-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.