Læknablaðið - 15.06.1997, Page 17
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
377
verkjum. Nóttina fyrir innlögn vaknaði hann
með slæma verki í neðanverðum kviði og
hægðalosunarþörf. Fór á salerni 60-70 sinnum
næsta hálfan annan sólarhringinn, stundum
kom einungis blóð og slím, en stundum mótað-
ar hægðir.
Sjúklingur hafði almennt verið hraustur en
undanfarin 10 ár þó fengið slæm verkjaköst í
neðanverðan kvið nokkrum sinnum á ári sem
stóðu stutt og stundunr fylgdi niðurgangur.
Skoðun við innlögn leiddi eftirfarandi í ljós:
Sjúklingur var fölur og veikindalegur, hitalaus
með eðlilegan blóðþrýsting og púls, blóðþrýst-
ingsfall í réttstöðu. Kviður var mjúkur, en
eymsli neðanvert í kviði, mest í vinstri mjaðm-
argróf. Slímhúð var eðlileg við endaþarms-
speglun. Daginn eftir var gerð vinstri ristil-
speglun og kom þá í ljós bjúgmikil, léttblæð-
andi, auðsæranleg slímhúð með sármyndun-
um, frá miltisbugðu niður í 14 cm. Skoðun á
vefjasýnum leiddi í ljós breytingar sem sam-
rýmdust best blóðþurrðarástandi, það er bjúg-
ur, aukin blóðsókn, smáblæðingar og nýmynd-
un fínæða. Auk þess staðbundið drep í yfir-
borðsþekju ásamt gagnvirkum kirtilbreyting-
um og bráðum bólguviðbrögðum, að öðru leyti
var engin bólga til staðar og engin sýndar-
himnumyndun. Sýni frá endaþarmi og þver-
ristli voru með eðlilegu útliti.
Sjúklingur var meðhöndlaður með þarma-
hvfld og vökva í æð. Þremur dögum eftir inn-
lögn var hann orðinn svo til einkennalaus og
líðan hefur verið góð síðan.
Tilfelli 2: Tuttugu og níu ára karlmaður með
tveggja til þriggja ára sögu um óreglulegar
hægðir, þar sem skiptust á harðlífi með kvið-
verkjum og vindgangi og niðurgangur með lin-
un einkenna. Sjúklingur hafði aldrei reykt.
Hann hafði tekið indómetasínhylki 25 mg
tvisvar á dag í um það bil tvær vikur vegna
tognunar í baki. Tveimur sólarhringum fyrir
innlögn vaknaði sjúklingur með verkjaónot í
kviði. Hann hafði harðar hægðir um morgun-
inn, síðan linari og tíða hægðalosunarþörf um
daginn, en einungis kom teskeiðarfylli af
fersku blóði í hvert skipti. Við komu var kviður
mjúkur, en væg eymsli í vinstri mjaðmargróf.
Hiti var 37,7° C, blóðþrýstingur og púls eðli-
legur og blóðrannsóknir innan eðlilegra
marka. Sjúklingi var ráðlagt fljótandi fæði, en
kom í vinstri ristilspeglun tveimur dögum síð-
ar. Hann var slappur í millitíðinni og tók eftir
blóði með hægðum. Við speglun sáust „bólgu-
No. of patients
Fig. 2. Age distribution of the 26patients with ischemic colitis.
Fig. 3. Number of patients with lesion in each segment of the
colon (many patients had ischemia in more than one seg-
ment).
Table III. Disease course of the 26 patients with ischemic
colitis (extent of injury, cause of death).
<40 years >60 years
Transient (reversible) 5 13
Transmural infarct 0 7
Chronic with stricture formation
(and late operation) 0 1
Colon resection 0 9
Died 3
Cause of death:
Renal failure 1
Sepsis 1
Sepsis + hepato-renal failure 1
Survived 6
Died without operation 0 2
Cause of death:
Gl bleeding 1
Sepsis 1