Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.06.1997, Side 37

Læknablaðið - 15.06.1997, Side 37
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 397 góðri stjórnunarþekkingu sé mikilvægt inn- legg í stjórnun heilbrigðiskerfisins. 3. Gefa ber gauni að og gera tillögur um stjórnunarlega uppbyggingu heilbrigðis- kerfisins. 4. Læknum verði skylt að fara í stjórnunarnám þegar þeir taka við stjórnunarstöðum. 5. Stjórnunarnám verði metið að verðleikum við stöðuveitingar. 6. Laun á sjúkrahúsum verði bætt þannig að menn þurfi ekki að vinna utan þeirra og geti helgað sig stofnuninni. 7. Gefa þarf stjórnunarstörfum meiri tíma í ráðningasamningi og verða laun að vera samkeppnisfær við aðra starfsemi lækna. Eftirmáli Fyrirspurn kont fram hvers vegna eigin hags- munir voru teknir með sem eitt af þremur hlut- verkum læknisins þar sem allir einstaklingar hvað sem þeir starfa þurfa að gæta eigin hags- muna. Astæðan er sú að læknar sem talsmenn sjúklinga eru í sérstakri aðstöðu til þess að geta blandað hagsmunum sínum inn í hagsmuna- vörslu fyrir sjúklinga. Þessi staða er mjög óvenjuleg og mikið reyndar skrifað um hana og rætt beggja megin Atlantshafsins og því óeðli- legt að sleppa þessum þætti í þessu samhengi. Einnig kom fram athugasemd um að ekki ntegi skilja að hlutverk læknis sem talsmaður sjúklings og stjórnunarhlutverkið. Er varað við þessu sjónarmiði í tillögum okkar. Einnig kom fram að rekstrarstjórnendur eigi að vera aðstoðarmenn okkar læknana og því líkt við gíslingu að láta þá komast upp með eitthvað annað. Þetta sjónarmið lýsir gíslingu hugarfarsins af öðrum toga. Mikilvægt er að skoða alla þætti stjórnunar með opnum huga. Kennsla og rannsóknir í læknadeild Grunnnám læknanema hefur verið með hefðbundnum hætti undanfarna áratugi, þó hafa orðið nokkrar veigamiklar breytingar. Gefin hefur verið kostur á svokölluðu fjórða árs verkefni, sem er rannsóknarverkefni unnið í samvinnu við sérfræðinga og kennara í lækna- deild, verkefninu lýkur síðan með kynningu á rannsóknarráðstefnu fjórða árs læknanema að vori. Fjölmargir hafa nýtt sér þann mögukeika að halda áfram rannsóknum á sama sviði til BS eða MS náms. Fjölmargar vísindagreinar hafa verið birtar í kjölfar slíkra verkefna. Framhaldsnám unglækna hefur á undan- förnum árum aukist mjög að magni og gæðum. Kandídatar eru nú ráðnir í 12 mánaða náms- stöður sem veita rétt til lækningaleyfis. Námið er skipulagt í samráði við kennara læknadeild- ar, forstöðumenn fræðasviða og framhalds- menntunarráð læknadeildar. Gerðir hafa verið Frá vinnuhópi LÍ um rannsóknir og kennslu. Hópinn skipuðu Árni Jón Geirsson hópstjóri, Einar Stefánsson, Guðmund- ur Þorgeirsson, Gunnar Sigurðsson, Jóhann Á. Sigurðsson, Óskar Jónsson og Sigurður Guðmundsson. Árni Jón Geirsson gekk frá erindinu. lágmarksstaðlar fyrir aðbúnað deilda og sjúkrahúsa, sem veita framhaldsmenntun og verða þeir hluti af reglugerð um veitingu lækn- inga- og sérfræðileyfa. Námi er fléttað inn í dagleg störf undir handleiðslu sérfræðinga. Hvert 12 mánaða tímabil hefst með sumarnám- skeiði f bráðalæknisfræði, einn tími á dag í tvo mánuði. Endurlífgunarnámskeið með verk- legri þjálfun er einnig veitt í upphafi hvers tímabils. Boðið er upp á námskeið í læknis- fræðilegri siðfræði, tölvufræði og tölfræði. Á hverjum morgni er tilfellafundur undir hand- leiðslu sérfræðings, einnig eru vikulegir til- fellafundir sem stjórnað er af unglæknum. Að auki eru tveir fræðslufundir vikulega og viku- leg yfirferð yfir prófspurningar bandarísku lyf- læknasamtakanna á hinum ýmsu sérsviðum. í janúar á ári hverju er vikunámskeið fyrir deild- arlækna og aðra, þessu námskeiði lýkur síðan með stöðluðu prófi sem lagt er fyrir bandaríska unglækna í námi í lyflækningum. Árangur íslenskra deildarlækna hefur verið góður, þeir hafa verið um miðjan hóp á flestum sviðum. Rannsóknir kandídata og deildar- lækna eru snar þáttur af starfinu og er gerð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.