Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1978, Side 67
TÍÐNI GALLSTEINA OG GALLSTEINAUPPSKURÐIR A BORGARSPÍTALANUM
Þórarinn Guðnason
Frá skurðlækningadeild
Fjallað er um txðni gallsteina hér á landi og víðar, og skýrt frá uppskurðum vegna
sjúkdómsins á Borgarspítalanum. Ger>5 er grein fyrir kyndreifingu sjúklinganna og
aldursflokkun. á tímabilinu 1971-77 að báðum árum meðtöldum.
"The state of our knowledge in this field is
desparately fragmentary, depending as it does
on the odd person here and there who has
become intrigued enough by the gallstone
question to spend time and trouble on studying
the pattern of gallstone incidence in his
locality."
K.W. Heaton
I.
Gallsteinar eru mismunandi algengir meðal þjóða heims, og hefur helst verið reynt
að fá samanburð mi.lli landa og heimsálfa með því að athuga hve oft steinar finnast
við röntgenskoðanir, skurðaðgerðir eða krufningar.
Þórarinn Sveinsson (8) fór yfir krufningaskýrslur á Rannsóknastofu Háskólans árin
1932-56 og komst að þeirri niðurstöðu að herlendis fyndust gallsteinar við rösklega
8 af hverju hundraði líkskurða. Sambærilegar tölur frá öðrum þjóðum voru tilfærðar
af Brett og Barker (1) í viðtasku yfirliti og slst sýnishom af því x töflu 1.
Elstu upplýsingar sem þessir höfundar studdust við eru frá 1890 en þær yngstu frá
1973. Eins og Þ.Sv. taka sumir höfundanna, sem leggja til efni í yfirlitið, ekki
með í reikninginn fólk sem dó innan við tvítugt; aðrir miða við 10 ára aldur, 15
eða jafnvel 30, enn aðrir taka alla aldursflokka með. Þess ber að geta, að með
Danmörku er átt við krufningaskýrslur frá Kaupmannahöfn, með Englandi er átt við
London eða Birmingham o.s.frv. og stundum er tekið meðaltal, en engu að^síður má
vænta þess að tölumar gefi sæmilega hugmynd um heildartölur hverrar þjóðar
(tafla 1).
Tölur úr krufningaskýrslum annarra heimshluta virðast mjög af skornum skammti, en
af þeim má þó ráða áð gallsteinar slu fátíðir í þriðja heiminum.
önnur leið til þess að geta sár til um tíðni gallsteina er að athuga fjölda þeirra
uppskurða sem gerðir eru vegna sjúkdómsins og bera þannig saman tímabil og þjóðir.
Þ.Sv. (8) greinir svo frá, að á árunum 1946-55 hafi verið gerðir 433 gallvega-
uppskurðir eða rúmlega 40 á ári. Við lauslega athugun um 1970 taldist^mlr svo til
að nálægt 100 gallsteinaaðgerðir væru þá framkvaætdar á öllu landinu á ári hverju,
°g líkur benda til, að nú slu þær kringum 200 á ári. Hversu nákvænar upplýsingar
Þetta gefur um aukningu sjúkdómsins hjá okkur er ekki gott að segja. Hlr kemur
margt til - fólksfjölgun, breytt aldursdreifing, meiri greiningarmöguleikar,
vaxandi skilningur á þörf skurðaðgerðar o.s.frv.
Bandaríkjamenn telja, að gallskurðir þar í landi slu 350-500 þús. á ári, eftir því
við hvaða heimildir er stuðst (4,6), en um 98% slíkra aðgerða eru vegna steina,
og eftir því að dæna gerum við ekki betur en vera hálfdrættingar á við þá í þessum
efnum. Plant o.fl. (5) giska á, eftir athugun í þremur álíka stjórum bæjum £ Kanada,
65