Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1978, Side 150
þó fáar og hafa niðurstöóur því lítið sem ekkert tölfræðilegt gildi.
Allir sjúklingarnir eru enn á lífi, morbiditet var lágt og sýkingar eftir aðgerð
engar.
Helstu fylgikvillar voru:
1. Lyktarskynstap hjá allmörgum, en ekki öllum.
2. Skammvinnur diabetes insipidus hjá fimm sjúklingum.
3. Endurvöxtur á chromofob adenoma hjá einum sjúklingi og enduraðgerð þrem árum
eftir fyrri aðgerðina.
4. Skammvinn sjónsviðsskerðing eftir aðgerð hjá einum sjúklingi.
5. Einn sjúklingur fékk myxoedeoma eftir aðgerð, en jafnaði sig fljótlega við
lyfjagjöf.
6. Einn sjúklingur fékk verk fyrir brjóst og var grunaður um subendocardial in-
farct, sem aldrei var þó staðfestur.
7. Einn sjúklingur fékk brunasár á fótlegg vegna óvarkárni með hitapoka er hann
var að jafna sig eftir svæfingu á gjörgæslu.
Tveir sjúklingar fóru oftar en einu sinni í aðgerð, annar vegna endurtekinna sjúk-
dómseinkenna þrem árum eftir aðgerð, eins og að ofan er getið, en hinn sjúklingur-
inn var 49 ára gömul kona, sem kom inn með unilateral hydrocephalus, sem orsakaðist
af stóru meningioma á dorsum sellae; um gang mála sjá síðar.
Árgangur og umræða
Árangur aðgerða verður að teljast góður. Tími frá aðgerð er reyndar tiltölulega
skammur, aðeins þrjú ár að meðaltali, og verður að minnast þess þegar hugsað er
um endurvöxt, þar sem í öllum tilvikum er hér um að ræða hægt-vaxandi góðkynja
æxli.
Dánarhlutfall við meningioma-aðgerðir svipaðar þeim, sem hér hafa verið gerðar, er
talið vera um 20-25%. Dánarhlutfall við aðgerðir vegna chromofob adenomata, eins
og þeirrar sem hér um ræðir, er yfirleitt lágt eða 5%. SÚ tala hækkar verulega ef
um mikinn suprasellar vöxt er að rasða eða enduraðgerðir. Við craniopharyngioma
aðgerðir er mortalitet yfirleitt lágt við fyrstu aðgerðir eða 5%. lin margföldun
á þeirri tölu er að ræða við enduraðgerðir.
1. Adenoma
Hjá öllum sjúklingunum, sjö talsins, var aðallega um sjónsviðsbreytingar að ræða
fyrir aðgerð. í tveim tilvikum urðu sjónsvið eðlileg eftir aðgerð. I hinum fimm
var um verulegan bata að ræða. Allir þessir sjúklingar hafa náð þeirri heilsu,
sem þeir höfðu fyrir aðgerð a.ö.l. en því, að þeir taka cortison acetat 37,5 mg
á dag. Þrír fá thyroxin viðhaldsmeðferð. Sá sjúklingur, sem hafði eosionofil
adenoma eignaðist barn eftir aðgerð. Það var ung kona, sem árangurslaust hafði
reynt að eignast barn áður, og mun þetta nánast einsdami. Hjá einum sjúklingi var
um endurvöxt á æxlisvef að raáa og fór hann í aðgerð þremur árum síðar. Eftir
seinni aðgerðina hafði hann aðeins lxtilvæga sjónsviðsbreytingu (væga bitemporal
efri quadrant anopsiu), sem var mun betra en fyrir fyrri aðgerðina (því nær algjör
bitemporal hemianopsia).
2. Meningioma
Einn sjúklingur er fulllæknaður með nánast eðlilegt sjónsvið. Annar sjúklingur
tekur phenytoin vegna flogakasta, sem reyndar byrjuðu fyrir aðgerð. Sjón var hjá
honum eðlileg fyrir aðgerð og er enn. Þriðji sjúklingurinn hefur svipað sjónsvið
°g fyrir aðgerð, en um nokkra skerðingu var að ræ5a fyrst eftir aðgerðina, en