Læknablaðið : fylgirit - 01.08.1981, Side 11
9
í algildum einingum. Við aðrar kringum-
stæður er mikilvægara að þekkja hlutfallið
milli tveggja hljóðstyrkleika t.d. hæsta
hljóðstyrk, sem sónskanni nemur miðað við
þann lægsta. Á þann hátt má sneiða hjá
að gera erfiðar algildar mælingar á hljóð-
styrk.
Tákni tölurnar I2 og Ix tvo hljóðstyrkleika
og tölurnar Á2 og At samsvarandi bylgju-
sveiflur er afstæði hljóðstynkurinn mældur
í decibel eftirfarandi:
db = 10 x 10 lOg 10 x 1,,/Ij =
20 x 10 lOg 10 Ao/A^
Styrkstigi bergmáls frá vefjum líkamans
nær yfir 100 decibel. Sterkasta bergmálið
frá vef er 1010 sinnum sterkara, en hið veik-
asta. Ekki hefir tekist að byggja sónskanna,
sem spannar yfir meira en 50-60 decibel.
Hæfileiki sónskanna til að sýna mismun-
andi sterk eða veik bergmál kallast styrk-
svið skannans. Nánar skilgreint er styrk-
svið sónskanna logari þmahlutfall sterkasta
og veikasta bergmáls, sem skanninn er næm-
ur fyrir.
Myndtækið er sá hluti sónskannans, sem
takmarkar styrksvið hans. Styrksvið helstu
myndtækja er eftirfarandi:
Skönnunarbreytir
Bakskautslampi
Sj ón varpsmóttakari
Minnissjá
Ljósmyndafilma
30 decibel
20 decibel
20 decibel
0-5 decibel
10-20 decibel
Áhrif hljóSorku á mannsHkainann:
Áhrif hljóðorku á mannslíkamann hafa
verið mikið rannsökuð.13 91718 Þessum
áhrifum má skipta í tvennt, elðlisfræðileg
áhrif og líffræðileg áhrif. Þegar hljóðið
berst um vefi líkamans færist hluti hljóð-
orkunnar yfir í vefina. Áhrifin fara einkum
eftir orkumagninu, sem vefirnir taka til sín,
en einnig eftir því, hve hratt vefirnir taka
til sín orkuna og hvaða vefur það er, sem
hljóðið berst um. Einn mikilvægasti eigin-
leiki hljóðs er sá, að gagnstætt rafsegul-
bylgjum veldur hljóð aldrei jónamyndun í
vefjum.
Hitamyndun er algengasta afleiðing hljóð-
geislunar. Hún stafar af núningsmótstöðu i
efnunum, sem hljóðið berst um. Vefirnir losa
sig við hita á venjulegan hátt, hitinn leiðist
og geislar burt, jafnframt því að blóð-
straumurinn kælir vefina. Ef hitamyndun
verður örari en útgeislun og leiðni, hækkar
hitastigið í vefjunum, þar til jafnvægi er
komið á. Sá hiti, sem ríkir, þegar jafnvægi
er komið á, getur orðið nógu mikill til að
valda tjóni á vefjum. Aflið í hljóðbylgjun-
um veldur aukinni hreyfingu á sameindun-
um í vefjunum. Þessi aukna hreyfing getur
orðið svo mikil, að sameindimar rífi sig
lausar og vefurinn skemmist. Undir vissum
kringumstæðum getur orðið holumyndun 5
vefjum. Holurnar geta verið með tvennu
móti, stöðugar holur og hverfular holur.
Stöðugar holur sveiflast í takt við hljóð-
bylgjurnar í samræmi við þrýstingsbreyt-
ingar, sem hljóðbylgjurnar framkalla.
Hverfular holur halda áfram að stækka
þar til þær falla saman. Við það losar um
mikla orku, sem getur rifið sundur vefi.
Holumyndun er talin eiga sér stað, ef
notaður er mikill hljóðstyrkur, en hlutfalls-
lega lág tíðni. Mikill hljóðstyrkur veldur
hitastigshækkun, sem verkar hvetjandi á
efnabreytingar, sem ekki myndu eiga sér
stað við lægra hitastig.
Hljóðorkan getur einnig valdið líffræði-
legum breytingum. Sumar þeirra ganga til
baka, þegar hljóðáhrifin hverfa. Ástæðum-
ar fyrir því, að hljóðorkan getur haft líf-
fræðileg áhrif eru ekki kunnar. Kunnugt er
þó, að margar líffræðilegar breytingar, sem
koma fram við hljóðgeislun, koma einnig
fram við upphitun. Hitamyndunin í vefjun-
um er í beinu hlutfalli við styrkleika hljóðs-
ins og uppsogsstuðul vefsins, sem hljóðið
berst um. Uppsogsstuðullinn er í beinu hlut-
falli við tíðni hljóðsins. Sé styrkur hljóðsins
1 watt á cm2 og tíðnin 1 megahertz mynd-
ast 0,024 hitaeiningar í vefjunum á sekúndu.
Vefirnir myndu því hitna um 0,024° á sek-
úndu, ef þeir gætu ekki losað sig við hit-
ann. Við hljóðstyrkleikann 0,1 watt á cm2,
sem er mesta geislun, sem notuð er í són-
greiningu, geta vefirnir auðveldlega losað
sig við hitann, jafnvel þó geislunin vari i
langan tíma.7 Sónskannar sem nú eru á
markaði, framleiða ekki hljóðorku í því
magni, að sjúklingum geti stafað hætta af
sónmyndatökum. Aukaverkunum af són-
myndatökum hefir enn ekki verið lýst, þrátt
fyrir hinn mikla fjölda, sem búið er að taka
af sónmyndum.716 Aukaverkana mætti þó