Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Side 85
83
rann eins og alfaglobulin við rafdrátt. Það
mun myndast að mestu leyti í lifur og er
álika stórt eggjahvítuefni og albumin.0 Magn
AFP í serum fer vaxandi fram á 13.—15.
viku en lækkar síðan aftur. 1 legvatni er
mun minna AFP, en magnið í legvatni fylgir
magninu í blóði fóstursins, það er hæst á 13.
—15. viku en fellur siðan ört og er orðið
mjög lágt þegar kemur fram á 30. viku.6 7
AFP finnst einnig í blóði móður en í mjög
lágu magni og hámarki nær það á 32.—36.
viku meðgöngutima.7
Það hefur sýnt sig að AFP hækkar í leg-
vatni og blóði fósturs og móður þegar fóstrið
er með rof í miðtaugakerfi, (anencephalus
og opna spina bifida).67 Það geta þó einnig
verið aðrar ástæður fyrir hækkun bæði aðrir
vanskapnaðir, sjúkdómar og eðlileg með-
ganga fleirbura.6 7 8
Mælingar á AFP hafa verið framkvæmdar
á öllum legvatnssýnum sem hafa verið tekin
á Kvennadeild Landspitalans hjá konum, sem
gengnar eru með 14—16 vikur. Til þessa hef-
ur aðeins eitt fóstur með klofinn hrygg
(myelomeningocele) greinst vegna verulegr-
ar hækkunar á AFP í legvatni, en tilfelli
þetta kom til sögunnar eftir að eftirfarandi
uppgjöri lauk. Þar að auki hefur marktæk
hækkun á AFP fundist i þremur tilfellum
(sjá töflu VIII).
Fyrst í stað var einungis hugað að þvi að
rannsaka sýni frá þeim konum sem áður
höfðu fætt börn með litningagalla eða misst
börn vegna vanskapnaða. Voru flestar þessar
konur sendar til deildarinnar af Sævari Hall-
dórssyni, sem hafði einkum haft með fyrri
börn þessara kvenna að gera. Fyrstu sýnin
voru tekin síðla árs 1973, en það ár voru þrjú
sýni send til Kaupmannahafnar til rannsókn-
ar. Þegar ljóst var orðið að unnt væri að
senda sýni á þennan hátt fór beiðnum fjölg-
andi þótt hægt færi i fyrstu. Árið 1974 voru
þannig aðeins send þrjú sýni en á miðju
sumri 1978 höfðu alls verið send til Kaup-
mannahafnar sýni frá 95 konum. Um það
leyti hófust litningarannsóknir á legvatni við
Rannsóknastofu Háskólans eins og áður er
getið.
Dr. Gunnlaugur Snædal gerði fyrstu á-
stungunar, en siðan tóku Auðólfur Gunnars-
son og fleiri einnig að framkvæma þær.
Nauðsynlegt er að sónarskoðun sé gerð í
tengslum við legástungurnar. Best er að gera
slíka sónarskoðun 2—4 vikum fyrir ástungu
og aftur um leið og ástungan er gerð. Þá er
hægt að fylgjast með vexti og legu fósturs-
ins, greina tvíbura og staðsetja fylgjuna,
þannig að beina megi ástungunálinni fram-
hjá þeim. Með fullkominni nútíma sónar-
tækni má auk þess greina vissan meiri hátt-
ar ytri vanskapnað. Eftir tilkomu sónartæk-
isins árið 1976 hafa nær allar ástungur verið
gerðar með hjálp sónarskyggingar sem
læknarnir Jón Hannesson og siðar einnig
Kristján Baldvinsson hafa yfirleitt annast
þann tíma sem uppgjörið nær til.
Þar sem legvatnsrannsókn er i eðli sinu
fyrirbyggjandi aðgerð, er nauðsynlegt að
aukaverkanir séu fáar og nákvæmni rann-
sóknarinnar mikil. Til þess að ikanna niður-
stöður og tiðni aukaverkana voru notaðar
sjúkraskýrslur fyrstu 499 kvennanna, sem
gerð var hjá legvatnsrannsókn til greiningar
á fósturgöllum. Rannsóknin nær frá 1974 og
fram til maimánuðar 1980. Allar konurnar
hafa nú fætt, svo að útkoma meðgöngunnar
liggur fyrir.
NIÐURSTÖÐUR
Aldur niæði-a
Tafla I sýnir aldursdreifingu umræddra
kvenna.
TAFLA I. Aldursdreifing kvenna sem gerO var
á legvatnsrannsókn.
Fjöldi %
<19 ára 12 2.4
20—24 — 46 9.2
25—29 — 62 12.4
30—34 — 86 17.2
35—39 — 231 46.4
40—44 — 58 11.6
45 - 4 0.8
AUs 499 100.0
TAFLA II. FœOingarsaga kvennanna.
Fjöldi %
Frumbyrjur 47 9.4
Fætt. 1 barn áður 99 19.S
Fætt 2 börn áður 178 35.7
Fætt 3 börn áður 111 22.3
Fætt 4 börn áður 48 9.6
Fætt 5 börn áður 16 3.2
Alls 499 100.0