Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1996, Blaðsíða 41
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82/FYLGIRIT 34
41
hafa bæði sýnt lípoxýgenasa-hemjandi verkun in
vitro.
I þessari rannsókn voru prófuð áhrif prótóli-
chesterínsýru og lóbarínsýru á vöxt og viðhald
ýmissa frumutegunda úr mönnum í rækt. Valdar
voru til rannsóknar tvær frumulínur úr brjósta-
krabbameini (T-47D og ZR-75-1), ein frumulína
úr hvítblæði (K-562), eðlilegar bandvefsfrumur
úr fimm einstaklingum og eðlilegar eitilfrumur úr
fjórum einstaklingum. Frumufjölgun var metin
með því að mæla DNA framleiðslu (upptöku á
geislamerktu thymidini), fjöldi lifandi frumna í
rækt var mældur með MTS aðferð (metur frumur
með virk efnaskipti) og litun með trýpan bláu.
Einkenni um stýrðan frumudauða (apoptosis)
voru metin með smásjárskoðun. Bæði efnin
höfðu verulega hamlandi áhrif á frumufjölgun
allra þriggja illkynja frumulínanna og var prótól-
ichesterínsýra heldur virkari en lóbarínsýra.
Brjóstakrabbameinslínurnar sýndu mest næmi,
ED50 fyrir áhrif prótólichesterínsýru á T-47D og
ZR-75-1 var 3,8 og 1,1 pg/ml, en 21,1 og 14,5 pg/ml
fyrir lóbarínsýru. Fyrir K-562 voru ED50 gildin
24,6 og 44,7 pg/ml, en um það bil þrisvar sinnum
hærri gildi ollu verulegum frumudauða og frum-
urnar höfðu sjáanleg einkenni um apoptosis.
Hvorugt efni hafði nein veruleg áhrif á frumu-
fjölgun eða líftölu eðlilegra bandvefsfrumna.
Prótólichesterínsýra hindraði svörun eitilfrumna
við mítógenörvun með ED50 3,8 pg/ml, en fimm-
falt hærri styrkur olli 40% frumudauða.
í ljósi tilgátna um að afurðir lípoxýgenasa ferils
geti haft hvetjandi áhrif á vöxt illkynja frumna, er
áhugavert að kanna nánar hvort um tengsl sé að
ræða milli verkunar fléttuefnanna á illkynja frum-
ur og in vitro lípoxýgenasa-hemjandi verkunar.
E-50. Áhrif meta-iodobenzylguanidíns á
histamínviðtaka æðaþelsfrumna
Óskar Jónsson*, Haraldur Halldórsson*, Guð-
mundur Þorgeirsson*, **
Frá *Raimsóknastofu HÍ í lyfjafrœði, **lyflœkn-
ingadeild Landspítalans
Inngangur: Meta-iodobenzylguanidín (MIBG)
er efni hliðstætt noradrenalíni. Geislamerkt er
það meðal annars notað til greiningar á æxlum í
chromaffin vef, til dæmis pheochromocytoma.
MIBG er sértækur hindri á ADP-ribosyleringar
og er sem slíkt talið hindra histamín örvaða mynd-
un á inositol trisfosfati (IP3), prostacyklíni (PGI2)
og köfnunarefnisoxíði (NO). Tilgangur þessarar
rannsóknar var að kanna hvort MIBG hefði áhrif
á tengingu histamíns við H,-viðtakann.
Efniviður og aðferðir: Frumuhimnur ræktaðra
æðaþelsfrumna voru einangraðar. Einsleit lausn
frumuhimna var geymd í hitabaði með
[3H]mepyramíni (Hrantagonisti) og mismunandi
styrkleika af MIBG.[3H]mepyramín bundið
frumuhimnum var aðskilið frá lausu [3H]mepyra-
míni á filter með undirþrýstingi og magn þess
síðan ákvarðað með sindurteljara. Tríprólidín
(Hrantagonisti) var notað til að ákvarða sértæka
tengingu [3H]mepyramíns við H,-viðtakann.
Niðurstöður: [3H]mepyramín tengdist við eina
tegund viðtaka á frumuhimnunum því Scatchard
kúrfan fyrir sértæka tengingu þess var bein lína.
Klofnunarfasi (kd) [3H]mepyramíns var 0,42 nM
og hámarksbindigeta (Bmax) frumuhimnanna var
10,18 fmól/mg prótíns. MIBG minnkaði tengingu
[3H]mepyramíns við frumuhimnurnar. Hámarks-
hindrunin var 83% og var jafnvægi náð við 0,22
mM MIBG. Helmingshindrunarstyrkur (IC50)
MIBG var 0,094 mM og klofnunarfasti (k,) þess
var 0,076 mM. MIBG minnkaði tengingu
[3H]mepyramíns við frumuhimnurnar meira en
tríprólidín gerði. MIBA (Meta-iodobenzylami-
ne) minnkaði einnig tengingu [3H]mepyramíns
við frumuhimnurnar en í mun minna mæli en
MIBG.
Ályktun: MIBG virðist vera andhistamín og
hindra histamín örvaða IP3, PGI2 og NO myndun
æðaþelsfrumna með því að hindra tengingu þess
við H,-viðtaka á yfirborði frumnanna. MIBG
minnkar sennilega einnig ósértæka tengingu
[3H]mepyramíns við frumuhimnur.
E-51. Slímhimnubólusetning, verkunar-
máti og virkni
Sveinbjörn Gizurarson
Frá lyfjafrœði lyfsala HÍ
Bólusetning um nef eða munn hefur reynst geta
komið í stað stungubólusetningar. Rannsóknar-
sviðið, slímhimnubólusetning, hefur verið í mikl-
um vexti síðustu ár.
Með dýratilraunum hefur komið ljós að hægt er
að ná jafngóðum árhifum með bólusetningu á
slímhúð og með bólusetningu í formi stungulyfs
en einungis bólusetning á slímhúð getur framkall-
að verndandi mótefni á slímhimnur líkamans.
Pessi góðu áhrif koma fram þó svo að bóluefnið
nái eingöngu að vera á slímhimnunni í fáeinar
klukkustundir, samanborið við nokkrar vikur eft-
ir bólusetningu í formi stungulyfs.
Flytja þarf bóluefnið hratt yfir slímhimnuna og
til eitilfrumna en hreinsunarhæfni bifháranna í
nefinu sjá til þess að helmingunartími þess efnis
sem sest á slímhimnuna er 15 mínútur. Velja skal
hjálparefni sem geta bæði aukið frásog bóluefn-