Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1996, Blaðsíða 81
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82/FYLGIRIT 34
81
hringlaga sjösykrungar með bindisæti fyrir fitu-
sækin efni í holrúminu í miðju sykrungsins. (3CD
mynda gjarnan fléttu (complex) við efni með
arómatíska byggingu. Náttúrúlega efnið hefur þó
þann ókost að leysanleiki þess í vatni er takmark-
aður. Því eru afleiður, eins og til dæmis hýdroxý-
própíl-þCD oft notuð þar sem leysanleikinn er
meiri. Þær pCD afleiður sem mest hafa verið
notaðar hingað til eiga það sameiginlegt að vera
óhlaðnar. Nýlega hafa komið á markað |3CD af-
leiður sem eru jónískar. I þessu verkefni var rann-
sakað hver áhrif jónískrar hleðslu cýklódextrína
voru á fléttumyndun og stöðugleika jónískra
lyfja.
Aðferðir: Niðurbrot acetýlsalicýlats, klóram-
búcíls og atrópíns var mælt í stuðpúðalausnum
með mismunandi þéttleika CDa. Mælingar voru
gerðar fyrir þrjú jónísk CD; karboxýmetýl-|3CD,
súlfóbútýl-þCD og trímetýlamínó-(3CD. Til sam-
anburðar voru áhrif þriggja óhlaðinna CDa einnig
mæld; hýdroxýprópýl-|3CD, acetýl-(3CD og
metýl-)3CD. Áhrif fléttumyndunarinnar á NMR
róf klórambúcfls voru einnig könnuð.
Niðurstöður: Klórambúcfl og atrópín mynduðu
fléttu með cýklódextrínunum. Lyf með gagn-
stæða hleðslu við jónísku cýklódextrínin mynd-
uðu að meðaltali sterkari fléttu en þau sem höfðu
sömu hleðslu. Áhrif fléttumyndunarinnar á nið-
urbrotshraðann voru svipuð fyrir öll cýklódext-
rínin, nema fyrir súlfóbútýl-(3CD þar sem niður-
brotshraðinn var meira en sjöfalt minni.
Ályktun: Jónísk cýklódextrín gætu hentað vel
sem hjálparefni í lyf þar sem þau hafa jafnan
minni tilhneigingu til að frásogast en óhlaðin cýk-
lódextrín. Fléttumyndunin stjórnast að hluta af
jónískum áhrifum. Til að ná fram meiri fléttu-
myndun er betra að nota cýklódextrín sem hafa
gagnstæða hleðslu við lyfið. Hleðslur CDa hafa
ekki bein áhrif á niðurbrotshraða lyfja sem mynda
fléttu.
Frekari rannsóknir eru fyrirhugaðar með fleiri
lyfjum.
V-40. Áhrif cýklódextrína og fjölliða á
frásog lyfja í gegnum húð
Þorsteinn Loftsson, Anna M. Sigurðardóttir
Frá lyfjafrœði lyfsala HÍ
Inngangur: Helsta hindrun húðarinnar gegn
frásogi lyfja er hornlag hennar (stratum corn-
eum). Talið er að frásog lyfja í gegnum húðina fari
einungis fram með óvirkum flutningi. Hægt er að
auka frásog lyfja inn í og í gegnum húð með því að
bæta frásogshvötum (sorption promoters eða
penetration enhancers) út í burðarefni lyfja.
Hefðbundnir frásogshvatar, svo sem fitusýrur,
valda breytingum á eðlisefnafræðilegum eigin-
leikum hornlagsins þannig að hindrun þess
minnkar. Þessar breytingar eru oftast tímabundn-
ar, en það tekur þó oft nokkra daga fyrir húðina,
eða réttara sagt hornlag húðarinnar, að öðlast
aftur sinn fyrri varnarmátt. Á meðan eiga ýmis
aðskotaefni sem og örverur greiðari aðgang en
ella inn í líkamann. Auk þess valda sumir öflugir
frásogshvatar húðertingu og óþægindum. Önnur
leið til að auka frásog lyfja inn í og í gegnum
húðina er að auka aðgengi lyfjanna að húðinni, til
dæmis með hjálp cýklódextrína. Cýklódextrín eru
mynduð úr vatnssæknum stórum sameindum
(mólþungi um 1500) sem eiga ekki auðvelt með að
komast inn í húðina og hafa því engin áhrif á
hindrun hornlagsins.
Aðferðir: Við rannsóknirnar voru notuð cýkló-
dextrín sem báru mismunandi hleðslur og fjöllið-
ur. Rannsökuð voru áhrif fjölliða á cýklódextrín-
fléttun lyfja (það er áhrif fjölliða á stöðugleika
fléttunnar). Flæði lyfja úr cýklódextrínlausnum
var mælt in vitro í gegnum húð hárlausra músa.
Niðurstöður: Fjölliður auka stöðugleika cýkló-
dextrínfléttna en á sama tíma auka þær frásog
lyfja úr cýklódextrínlausnum í gegnum húð.
Hleðsla cýklódextrína virðist hafa einhver áhrif á
frásogshvetjandi eiginleika þeirra.
Ályktun: Cýklódextrínfléttur auka frásog lyfja
með því að auka aðgengi lyfjasameinda að yfir-
borði húðarinnar. Fjölliður virðast auka frásog
lyfjanna úr cýklódextrínlausnum með því að auka
aðsog fléttnanna að yfirborði húðarinnar (það er
leiða til betri tengsla fléttu við yfirborð húðarinn-
ar).
V-41. Ýmis fituefni unnin úr sjávarlíf-
verum auka frásog lyfja í húð
Þorsteinn Loftsson, Dorte S. Petersen, F. Le Gof-
fic, Hafrún Friðriksdóttir, Jón H. Ólafsson, ísam-
vinnu við Lýsi hf.
Frá lyfjafrœði lyfsala HÍ, húð- og kynsjúkdóma-
deild Landspítalans
Inngangur: Húðin er samsett úr fjölmörgum
frumulögum af mismunandi gerð sem hvert og
eitt hafa ákveðnu hlutverki að gegna. Ysta lag
húðarinnar nefnist yfirhúð (epidermis) en það
skiptist aftur í nokkur undirlög. Yst þessara und-
irlaga er hornlagið (stratum corneum) en það er í
flestum tilfellum aðal hindrun húðarinnar gegn
frásogi lyfja. Ekki hefur tekist að sýna fram á
virkan flutning lyfja í húð og er því talið að frásog
lyfja í gegnum hana fari einungis fram með óvirk-
um flutningi. Við óvirkan flutning flæða lyfjasam-