Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1996, Side 43

Læknablaðið : fylgirit - 15.12.1996, Side 43
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82/FYLGIRIT 34 43 stúlkna á 13. (n = 66) og 15. (n = 57) aldursári með SPA mæliaðferð. Þremur árum síðar var beinþéttnin mæld á ný í framhandlegg, aðlægum lærlegg og lendhrygg með DEXA aðferð. Jafn- framt báðum mælingum var spurningalisti lagður fyrir stúlkurnar varðandi mataræði og líkams- hreyfingu. Niðurstöður: Fylgnistuðlar (r) milli mælinga á 13. og 15. aldursári og mælinga þremur árum siðar á 16. og 18. aldursári. Ályktun: All góð fylgni var milli beinþéttni- mælinga í framhandlegg sem voru framkvæmdar með þriggja ára millibili þrátt fyrir mismunandi mæliaðferðir. Ekki var fylgni milli beinþéttni og kalkneyslu en meðalkalkneyslan í báðum könn- unum var góð en virðist talsvert breytileg milli ára í sömu hópum. Líkamshreyfing virðist vera mikil- væg varðandi hámarksbeinmassa. E-54. Beinmassi 16-20 ára stúlkna og áhrif Iíkamlegra þátta, gripstyrks, hreyfíngar og mataræðis Örnólfur Valdimarsson*, Jón Örvar Kristinsson*, Sigurjón Stefánsson*, Sindri Valdimarsson*, Leifur Franzson*, Gunnar Sigurðsson*, Laufey Steingrímsdóttir** Frá *lyflœkninga- og rannsóknadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, **Manneldisráði íslands Tilgangur: Kanna tengsl líkamsþátta og nær- ingar við beinmassa ungra kvenna og hvenær há- marksbeinmassa er náð. Einnig að athuga serum- þéttni 25-OH-vítamín-D og kalsíums og bera saman við næringu og beinmassa. Aðferðir: Tvöhundruð fimmtíu og fjórar stúlk- ur á aldrinum 16, 18, og 20 ára voru valdar með slembiúrtaki úr nágrenni Reykjavíkur í þessa þversniðsrannsókn. DEXA mæliaðferð var not- uð til þess að mæla beinmassa (BMC) og bein- þéttni (BMD) í framhandlegg, mjöðm, hrygg og líkamanum í heild og einnig heildarmassa vöðva og fitu. Vöðvastyrkur í framhandlegg var mældur með gripstyrksmæli. Hæð og þyngd voru mæld og spurst var fyrir um líkamsáreynslu og hún stiguð. Mataræði var ákvarðað með spurningalista frá Manneldisráði íslands. 25-OH-vítamín-D var mælt í sermi einnig kalsíum og fosfat. Niðurstöður: Meðalkalkneysla var há en D- vítamínneysla lág. D-vítamín í sermi var lágt en kalkið eðlilegt. Hvorki kalkneysla né D-víta- mínneysla var með fylgni við beinmassann. í fjöl- þáttagreiningu var vöðvamassi sá þáttur sem stóð upp úr varðandi fylgni við beinmassann en einnig hafði þungaberandi hreyfing fylgni við beinmassa mjaðmar. Tímalengd frá upphafi tíða hafði einnig fylgni við heildarbeinmassann og beinmassa handleggs og hryggs. Hámarksbeinmassa virðist vera náð um 20 ára aldur Ályktun: Vöðvamassi hefur mestu fylgnina við beinmassann, meira en fita, hæð og þyngd. Pungaberandi hreyfing virðist einnig hafa áhrif á beinmassann, sérstaklega áður en hámarksbein- massa er náð. Mikilvægi góðrar líkamsáreynslu fyrir þann aldur gæti því stuðlað að auknum bein- massa og gæti skipt verulegu máli í forvörn gegn beinbrotum síðar meir. E-55. Fullorðið fólk með skort á vaxtar- hormóni. Árangur vaxtarhormónmeð- ferðar Arni V. Þórsson*, Gunnar Sigurðsson** Frá *barnadeild og **Iyflœkningadeild Sjúkra- húss Reykjavíkur, *, **lœknadeild HÍ Inngangur: Vaxtarhormón hefur um langt ára- bil verið notað með góðum árangri til að með- höndla börn með vaxtarhormónskort. Þegar vexti líkur er vaxtarhormónmeðferð að jafnaði hætt. Nýlegar rannsóknir benda til að skortur á vaxtar- hormóni síðar á ævinni geti valdið ýmsum ein- kennum sem í vissum tilfellum getur skert mjög lífsgæði og heilsu fólks. Erlendar tilraunir hafa sýnt að meðferð með vaxtarhormóni geti bætt líðan og heilsu að minnsta kosti sumra einstak- linga með vaxtarhormónskort. Hér eru kynntar frumniðurstöður vaxtarhormónmeðferðar hjá ís- lendingum með vaxtarhormónskort. Aðferðir: Sjúklingahópurinn samanstendur af sjö einstaklingum sem fengu vaxtarhormónmeð- ferð á barnsaldri vegna vaxtarhormónskorts og sjö einstaklingum sem hafa orðið fyrir skaða á heiladingulsstarfsemi á fullorðinsárum. Konur voru fimm og karlar níu á aldrinum 18-69 ára. Áður en meðferð hófst voru allir sjúklingar rann- sakaðir ítarlega. Vaxtarhormónskortur var end- urstaðfestur með vaxtarhormónörvun (arginin/ glucagon eða arginin/insulín) og með endurtekn- um mælingum á Insulin-like Growth Factor I og Insulin-like Growth Factor Binding Protein 3 (IGFI/IGF BP3). Aðalmarkmið rannsóknarinnar er að finna hvort svörun fæst við smáum skammti af vaxtar- hormóni, (Genotropin® 0,1 mg/kg/viku) gefið daglega með sprautu undir húð. Rannsóknin mun standa í tvö ár og skammtar vaxtarhormón aðlag- aða svörun. Svörun við vaxtarhormónmeðferð var metin með eftirfarandi prófum: IGFI, IGFBP 3, mæld- ur var gripstyrkur, líkamssamsetning, einkum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.