Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1998, Side 3

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1998, Side 3
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84/FYLGIRIT 37 3 LÆKNABLAÐIÐ THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL 84. árg. Fylgirit 37 Descmbcr 1998 Aðsctur: Hlíðasmúra 8, 200 Kópavogi Útgcfandi: Læknafélag íslands Læknafélag Reykjavíkur Nctfang: icemed@icemed.is Símar: Skiptiborð: 564 4100 Lífeyrissjóður: 564 4102 Læknablaðið: 564 4104 Bréfsími (fax): 564 4106 Læknablaðið á netinu: hup://www.icemed.is/Iaeknabladid Ritstjórn: Emil Sigurðsson Gunnar Sigurðsson Hannes Petersen Hróðmar Helgason Reynir Amgrímsson Vilhjálmur Rafnsson ábm. Netfang: joumal@icemed.is Ritstjórnarfulltrúi: Bima Þórðardóttir Netfang: bima@icemed.is (Macintosh) Augiýsingastjóri og ritari: Asta Jensdóttir Netfang: asta@icemed.is (PC) Blaðamaður: Þröstur Haraldsson Netfang: throstur@icemed.is (Macintosh) Upplag: 1.700 Áskrift: 6.840,- m.vsk. Lausasala: 684,- m.vsk. © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á raf- rænu formi, svo sem á Netinu. Blað þetla má eigi afrita með nein- um hætti, hvorki að hluta né í heild án leyfis. Prentun og bókband: Prentsmiðjan Grafík hf. Smiðjuvegi 3,200 Kópavogi Pökkun: Plastpökkun, Skemmuvegi 8, 200 Kópavogi. ISSN: 0023-7213 IX. ráðstefnan um rannsóknir í ✓ læknadeild Háskóla Islands 4. og 5. janúar 1999 Ráðstefna um rannsóknir í læknadeild er nú haldin í níunda sinn. Deildarráð læknadeildar samþykkti að slík ráðstefna skyldi haldin og skipuð var nefnd til að sjá um hana 25. júní 1980. Fyrsta ráðstefnan var síðan haldin þann 7. mars 1981 og sú næsta ári síðar. Þriðja ráðstefnan og sú fyrsta sem þá nýskipuð vísinda- nefnd deildarinnar sá um var haldin 25. október 1986. Síðan hafa ráðstefnurnar verið haldnar á tveggja ára fresti, og á seinni árum hefur tíminn verið valin snemma í janúar meðan jólaleyfi eru í kennsluhúsnæði Háskólans. Sú ákvörðun þarfnast endur- skoðunar, því kennsla er nú hafin í deildinni fyrr en áður, og í ár skarast hún við kennsluna að einhverju leyti. Tilgangur slíkra ráðstefna er margþættur. Fyrst má nefna að á þeim gefst tækifæri til að viðra nýjar rannsóknir og niðurstöður og fá viðbrögð áheyrenda og áhorfenda við þeim. Einnig má þar fylgjast með framgangi rannsókna, sem áður hafa verið kynntar. I öðru lagi má nefna að í tengslum við þær gefst tækifæri til að æfa flutning erinda og gerð veggspjalda. I því sambandi má minna á þá kærkomnu nýbreytni, að árlega er haldin ráðstefna um rannsóknir stúdenta á fjórða ári, og gegnir hún, að nokkru leyti, svipuðum hlutverkum. Annað hlutverk þessarar ráðstefnu er að vera vettvangur fyrir nauðsynlegar upplýsingar um rannsóknarstörf og áhugaefni kennara, annars starfsfólks og nemenda deildarinnar. Þetta veitir einnig upplýsingar um rannsóknir á vegum sjúkrahúsa og ann- arra stofnana sem tengjast Háskóla Island. Ráðstefnurnar hafa hlotið vaxandi athygli. Aðal tilgangur þessa ráðstefnuhalds er þó að stuðla að auknum áhuga á innlendri rannsóknarstarfsemi í læknis- fræði og skyldum greinum. Rannsóknir leggja til nýja þekk- ingu og stuðla þannig að framförum. Sá sem er handgenginn rannsóknarstarfsemi er betur í stakk búinn til að leggja sjálfstætt mat á niðurstöður annarra og nýta, eða hafna, nýjungum í fræði- greininni. Það leiðir til þess að nýtilegar nýjar niðurstöður kom- ast fyrr í notkun en ella, og frekar má forðast það sem á eftir að reynast illa. Loks er þess að geta að rannsóknir á efniviði stofn- unar er oft talin besta aðferð til gæðaeftirlits. Fleira mætti telja til sönnunar á orðunum: Vísindin efla ullu dáð. Þessi ráðstefna ber vitni aukinni vísindastarfsemi því kynnt verða yfir 200 verkefni og er það um 13% aukning frá þeirri síð- ustu. Sú aukning skiptist nokkuð jafnt milli fyrirlestra og vegg- spjalda. Vegna þessa umfangs hefur reynst nauðsynlegt að fjölga fundarsölum úr tveimur í þrjá. Hrafn Tulinius formaður Vísindanefndar læknadeildar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.