Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1998, Page 29

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.1998, Page 29
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84/FYLGIRIT 37 29 slímhúð eftir innspýtingu og eftir innúðun í nef, en varnarkerfið hefur eflst verulega þar sem tæplega 60 sinnum fleiri IgA seytandi frumur hafa myndast og eru til reiðu eftir inn- úðun í nef. E-14. Uppsetning á ógeislavirku dráps- frumuprófl, Cytotox-96, fyrir mæði/ visnuveiru sérvirkar drápsfrumur Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, Svava Högnadóttir, Sigríöur Matthíasdóttir Frá Tilraunastöð Hl í meinafrœði að Keldum Við höfum aðlagað ógeislavirkt drápsfrumu- próf Cytotox-96 frá SDS Promega til að mæla mæði/visnuveiru (MVV) sérhæfðar drápsfrum- ur. En drápsfrumusvar er aðalvörnin í mörgum veirusýkingum. Losun laktat dehýdrógenasa er mæld í prófinu. Bandvefsfrumur voru ræktaðar úr hryggjar- sin þriggja kinda og frystar í fljótandi köfnun- arefni til að nota sem markfrumur (target cells). Kindurnar voru síðan sýktar með mæði/visnu- veiru í heila, þær fengu inótefnasvar og veira ræktaðist reglulega úr blóði þeirra. Blóð var tekið úr kindunum fyrir virknifrumur (effector cells). Hvítfrumur voru einangraðar á sykur- stigli og örvaðar in vitro í fimm daga á mæði/ visnuveiru sýktum bandvefsfrumum úr sömu kind. Eftir fimm daga voru eitilfrumur hirtar og endurörvaðar á bandvefsfrumum úr sömu kind í fjóra daga. Tvíörvaðar eitilfrumur voru hreins- aðar á sykurstigli og ræktaðar í sex daga í æti með vaxtarþáttum, og síðan notaðar sem virkni- frumur í prófinu. Drápsfrumuprófið var fram- kvæmt samkvæmt leiðbeiningum seljanda. Virknifrumur voru þvegnar, taldar og dreift í þynningum í 96 holu plötu, hver þynning í þrjár holur, 100 pl/holu. Markfrumur bæði ósýktar og sýktar með mæði/visnuveiru voru ræktaðar í T25 flöskum. Þær voru meltar af flöskunum, taldar og bætt í virknifrumu hol- urnar. Öll kontról voru gerð samkvæmt leið- beiningum. Ósýktar markfruinur voru alltaf prófaðar samhliða á sama hátt og sýktar. Plöt- urnar voru hafðar fjórar klukkustundir í hita- skáp, þá voru 50 pl af floti hirtir í flatbotna 96- holu plötur og 50 pl af hvarfefni bætt í flotið í 30 mínútur. Hvarfið var síðan stöðvað og út- koman lesin í ELISA lesara. Prófið virkaði vel og örvuðu T-frumurnar úr mæði/visnuveiru sýktu kindunum þremur drápu kröftuglega mæði/ visnuveiru sýktar bandvefsfrumur úr sömu kind en ekki ósýktar bandvefsfrumur. Mæði/ visnuveiru sýktar bandvefsfrumur úr óskyldri kind voru ekki drepnar. E-15. Rauðuhundavarnir í 20 ár. Reynsla úr síðustu faröldrum Margrét Guðnadóttir Frá veirufrœðistofnun lœknadeildar Aður en rauðuhundavarnir komu til urðu miklar fósturskemmdir í faröldrum. Eftir far- aldur 1963-1964 þurftu 37 sködduð börn sér- kennslu í Heyrnleysingjaskólanum þrátt fyrir 77 fóstureyðingar vegna rauðra hunda í faraldr- inum. Bóluefni voru léleg uns fram kom lifandi veikluð veira RA/27/3, þó ekki eins kröftugur mótefnavaki og eðlileg sýking. Aðrar veirur hafa ekki verið í bóluefni hér. í janúar 1977 hófst hér bólusetning mót- efnalausra 12 ára stúlkna og mótefnalausra kvenna á barneignaskeiði, væru þær á öruggum getnaðarvörnum eða alveg nýbúnar að fæða. Þetta voru einu bólusettu hóparnir 1977-1989. Bólusetning allra 18 mánaða barna hófst 1989. Bólusetning mótefnalausra kvenna og telpna hélt áfram. Stór rauðuhundafaraldur varð 1978-1979. Fáar konur og telpur höfðu verið bólusettar og hafði það engin áhrif á gang faraldursins. Rann- sóknastofugreining rauðra hunda var komin í gott horf og kunnu læknar að nota hana. Greind- ar voru 156 sýkingar í hópi 5.126 ófrískra kvenna í faraldrinum og gerðar 104 fóstureyð- ingar vegna sýkinga á fyrstu vikum meðgöngu. Sýking seinna á meðgöngu var ekki talin hætta. Bætt sjúkdómsgreining og betri tækni við fóst- ureyðingar virðist valda því að aðeins tvö börn þurftu sérkennslu eftir þennan faraldur sem var mjög líkur faraldrinum 1963-1964. Mótefnamælingar hófust í mæðravernd 1975. Arangursrík samvinna rannsóknastof- unnar við alla heilsugæslu í landinu um skipu- lega leit að mótefnalausum konum á barn- eignaskeiði, bólusetningu þeirra og mótefna- mælingu eftir bólusetninguna hófst 1979. Einnig samvinna við alla skólaheilsugæsluna um mælingar 12 ára telpna, bólusetningu þeirra mótefnalausu og mælingu eftir bólusetninguna. Þannig hefur nú náðst að kanna ónæmisástand 98% íslenskra kvenna á barneignaskeiði, bólu- setja yfir 99% þeirra sem þurftu og mæla mót- efni eftir bólusetninguna. Þær bólusettu mynda minni mótefna en þær
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.