Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1929, Side 13
Stefnir]
Frá öðrum löndum.
107
þar með setuliðinu í Rínarfylkj-
unum, en setja á stofn alþjóða-
banka, sem á að annast öll þessi
peningaviðskifti. Gera sumir sér
vonir um, að þessi banki verði vísir
að reglulegum alþjóðabanka, sem
annist allan skuldajöfnuð þjóða
milli, svo að hægt verði að hverfa
frá gamla gullmiðlinum. Aðrir
■eru vondaufari um þetta. Telja
þeir sennilegast, að þessi banki
verði aldrei annað en hégóminn
•einber, kraftlaus og gagnslaus —
eins og þjóðabandalagið. Deilur
munu og rísa um það, í hvaða
landi hánn eigi að starfa.
Hemaðarskuldirnar.
Skaðabótamálið hefir orðið enn
erfiðara viðfangs vegna þess, að
inn í það hefir fléttast annað mál,
lítið auðveldara viðfangs, en það
er, hvernig greiða skuli hernaðar-
skuldirnar milli bandaþjóðanna.
Á ófriðarárunum tóku banda-
þjóðirnar stórköstleg lán, einkum
frá Bandaríkjunum. All-mikill
hluti þessara lána var þannig, að
Englendingar tóku lánin vestra,
og lánuðu svo aftur bandamönn-
um sínum.
Nú eiga þjóðirnar erfitt með
að rísa undir þessum byrðum og
sú skoðun hefir náð talsvert föst-
um tökum, einkum í Frakklandi,
að þessar hernaðarskuldir sé í
raun réttri alveg ranglátar. —
Ófriðurinn hafi verið sameigin-
legt mál allra þessara þjóða. —
Bandaríkin hafi að vísu lagt fram
meira fé, en þeir hafi aftur á móti
tekið minni þátt í sjálfum ófriðn-
um. Þessar skuldir sé því alveg
ranglátt að heimta, og hafa
Frakkar fram að þessu skorast
undan að semja um þessi skulda-
skifti.
Englendingar eru vanir að
standa við f járhagsskuldbindingar
sínar og hafa fyrir ,löngu samið
við Bandaríkin um fulla greiðslu.
Árið 1922 lýsti Balfour því yfir
í orðsending til Bandaríkjastjórn-
ar, að Englendingar myndi ekki
heimta meira fé af bandamönnum
sínum en það, sem þeir þyrfti
sjálfir að greiða til Bandaríkj-
anna. Mátti líta á þetta sem til-
mæli um linum á kröfunum, án
þess að Englendingar sjálfir vildi
nota sér það.
Young-tillögumar og hemaðar-
skuldirnar.
Reynt hefir verið af ýmissa
hálfu að halda þessum tveim mál-
um alveg aðgreindum, skaðabóta-
kröfunni á hendur Þjóðverjum