Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1929, Side 71

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1929, Side 71
Stefnir] 165 Prá Alþingi 1929. Ymsar breytingar komu fram, bæði til þess að draga úr gjöldum fyrir ríkissjóð og til þess að minka hættuna við það, að þess- ar ráðstafanir yrði til þess að kippa úr framtaki einstakling- anna, og varð þetta frv. loks að lögum því að þingmenn kaupstað- anna gátu ekki vel staðið á móti þessari tilraun, þó að þeir hefði litla trú á árangrinum. Niðurlag. Þó að ýmislegt sé enn ótalið af því, sem sósíalistar höfðu á prjón- um sínum á þinginu, verður þetta að nægja, sem nú hefir sagt verið. En svo mikið er Víst, að þetta ætti að vera nóg til þess að sýna öllum landslýð, hvað við liggur. Þessir fáu menn, sem gerast svo umsvifamiklir, hafa nú sem stend- ur líf landsstjórnarinnar í hönd- um sér. Og mætti ótrúlegt heita, ef þeir menn, sem á annað borð eru sósíalistum ekki sammála, vilja láta það ástand haldast. Að undanteknum nokkrum mönn- um, sýnist Framsóknarflokkurinn hoppa heldur nauðugur í þessu sósíalista hafti. En hann hoppar samt, og reynir að gera sig blíðan á svip við þessa hörðu herra. Aðal sjálfsvörnin var sú, að setjast á mál sósíalistanna. Láta þá fá bita við og við, en tefja svo fyrir málum þeirra. Um helming- ur af öllum frv., sem sósíalistar báru fram, lenti í hóp „óút- ræddra" mála. Landsmenn þurfa að taka hér í taumana. Gera upp við sig, hvort þeir vilja fylgja sósíalistum eða ekki. Og ef þeir vilja það ekki, þá að fela þeim flokki og þeim mönn- um umboð sitt, sem þora að horf- ast í augu við sósíalistana og kurla vægðarlaust niður alt þetta þjóðnýtingarskran. Vinnudómurinn. Frumvarpið. Ekkert eitt mál lýsir betur þinginu 1929 en frumvarpið um dóm í vinnudeilum, bæði málið sjálft og meðferð þess. Frumvarp þetta var flutt af þremur íhaldsmönnum, þeim Jóni Ólafssyni, Jóni Sigurðssyni og Pétri Ottesen, og tveim Fram- sóknarmönnum, Jörundi Bryn- jólfssyni og Lárusi Helgasyni. Mál þetta er svo kunnugt orð- ið að varla þarf að lýsa því ná- kvæmlega. En aðal atriði þess eru þau, sem nú skal greina. Stofna skal svo kallaðan vinnudóm, og er aðal verksvið

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.