Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1929, Blaðsíða 95
Stefnir]
Kviksettur.
189
Stærsta úrval af úrum og klukk-
tím og allskonar gttll- og sílfurvörum.
Að ógleymdum trúlofunarhringunum
frægu. — Fegursti varningurinn í borginni
Sigurþór Jónsson.
Austurstræti 3. Símnefni „Úraþór".
Enginn sá hann. Engin stúlka
giftist honum. Hann var allt af
einhversstaðar úti í heimi og all-
ar fregnir um hann voru á reiki.
Jafnvel Parfitts, er seldu myndir
hans í Lundúnum, vissu ekkert
um hann, nema hvað þeir fengu
að sjá nafn hans aftan á tékkum
upp á þúsundir og tugi þúsunda.
Þeir seldu fyrir hann þetta fimm
stórar og fimm litlar myndir á
ári. Þær komu utan úr óvissunni
og tékkarnir fóru út í óvissuna.
Ungir listamenn söfnuðust, mál-
lausir af aðdáun, fyrir framan
listaverk hans, sem nú prýddu öll
stærstu söfn Norðurálfunnar
(nema í Lundúnum). Þeir tignuðu
hann, þá dreymdi um hann, hann
var eins og tákn fegurðar,
skrauts, listfengi og takmarka-
lausrar getu. Þeim var ómögulegt
að hugsa sér hann sem mann,
eins og þeir voru, raann, sem
þyrfti að reima að sér skóna,
hreinsa litborð, mann með órótt
og kvíðafult hjarta og hræddan
við einveruna.
Og loks fékk hann svo það
hæzta tignarheiti, sem til er, en
það er að vera nefndur í blöðum
og samræðum án nokkurs titils
eða tignarheitis. — Menn segja
aldrei: „Hinn frægi stjórnmála-
maður A. J. Balfour" eða „hin
ágæta leikkona Sarah Bernhardt",