Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1929, Side 46

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1929, Side 46
140 Friðarmálin. [Stefnir annars (í 4. gr.): „Fullar trygg- ingar skal gefa og taka fyrir því, að vígbúnaður sé takmarkaður eins mikið og unt er, þannig, að hægt sé að gæta reglu“. Versala- þingið samdi reglur um Þjóða- bandalagið, og þar segir svo í 8. gr.: „Ef friður á að haldast, verð- ur að draga úr vígbúnaði eins mikið og óhætt er fyrir öryggi hverrar þjóðar“. Þjóðabandalag- inu var svo falið að gera ráðstaf- anir til þess, að þessi takmörkun kæmist á. En úr því varð ekkert. Stjórn Bandaríkjanna lét, vorið 1921, rannsaka, hvernig þessum afvopn- unarmálum væri háttað, og sú rannsókn sýndi, að ástandið var mjög ískyggilegt. Þjóðabandalagið hafði ekkert aðhafst í þessu efni, og bæði herir og flotar voru aukn- ir með ári hverju. Alt stefndi út í sömu ófæruna eins og fyr. Þá var það, að Harding forseti boðaði til afvopnunarráðstefnu 1921. Bandaríkin höfðu þá sterku aðstöðu, að eftir áætlunum áttu þau að eiga stærsta flota heimsins eftir 3 ár. Nú buðust Bandaríkin til þess að láta alt sitja við sama, ef aðrar þjóðir vildi gera hið sama, og rífa auk þess herskip þau er til voru þannig, að flotar Bandaríkjanna, Englands og Jap- ans væri í hlutfallinu 5—5—3. Að þessu var gengið. En gallinn var sá, að þetta samkomulag náði aðeins til orustuskipa. Beiti- skip voru undanskilin nema að því leyti, að þau máttu ekki vera stærri en 10000 smálestir og ekki hafa víðari fallbyssur en 8 þuml- unga. Kafbáta var ekki hægt að banna vegna Frakka, sem settu sig algerlega á móti því, og töldu þá sína einu vörn á .sjó. Og frek- ari takmarkanir á vígbúnaði á sjó hafa strandað á því, að eitt hæfir þessum og annað hinum, og enginn vill missa sitt. Allar þjóðir játa, að æskilegt sé að tryggja friðinn. Og allar játa, að takmörkun vígbúnaðar sé ein leiðin að því takmarki. En mann- kynið fer að engu óðslega, og við hvert fótmál eru torfærur, sem ekki verður rutt úr vegi nema smám saman. IV. Loks kemur svo þriðja greinin, sem Coolidge kallar: Efling friðar með því að hafna ófriði. Það þarf ekki lengur að kenna mannkyninu, að ófriður sé böl. En þó er ekki hægt að neita því, að þær ástæður geta komið, að þjóð sýni ómensku með því að berjast ekki. Enginn þorir að neita því

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.