Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1929, Síða 50
MILLI
FÁTÆKTAR OG BJARGÁLNA.
Eftir Jón Þorláksson.
[Upphaf þessarar greinar birtist i 1. hefti Stefnis].
Blómlegur atvinnuvegur.
1 sérhverju landi eru venjulega
mörg atvinnufyrirtæki.semstunda
sömu eða svipaða framleiðslu,
og er sú starfræksla þá nefnd
atvinnuvegur einu nafni. Af því,
sem að framan er sagt, má ráða
það, að atvinnuvegur, sem er í
blóma, hefir á sér viss einkenni,
sem gagnlegt er að átta sig á.
Aðaleinkenni hans eru þessi:
1. Mikil framleiðsla.
2. Lágt verð á hinni framleiddu
vöru
3. Hátt kaupgjald.
4. Mikill ágóði.
Að framleiðslan þurfi að vera
mikil mun öllum finnast eðlilegt,
því að þá fer það saman, að fyr-
irtækið rekur vel hið almenna
ætlunarverk, fullnægingu mann-
legra þarfa, og það sérstaka ætl-
unarverk sitt, að skapa aðstand-
endum sínum skilyrði til þess að
geta fengið fullnægingu sinna
þarfa. Næsta einkennið liggur
ekki eins í augum uppi, og verð-
ur auðvitað að takmarkast af
þeirri almennu og sjálfsögðu
‘reglu efnahagslífsins, að sá sem
hefir sérstaka ástæðu til að gæta
einhverra hagsmuna, verður líka
að gjöra það, og gjöra það trú-
lega. Þessi regla þýðir þessvegna
auðvitað ekki það, að stjórnend-
ur neins fyrirtækis eigi að sækj-
ast eftir því út af fyrir sig, að
selja sína vöru sem ódýrast, til
þess að fá á sig þetta eina ein-
kenni blómlegs atvinnuvegar.
Þeirra er skyldan að reyna að fá
svo hátt verð, sem bezt samsvar-
ar hagsmunum þess fyrirtækis,
sem þeir veita forstöðu. En samt
sýnir nú reynzlan að þessi regla
er rétt, og það stafar annarsveg-
ar af því, að mikil framleiðsla
gjörir það yfirleitt ávalt mögu-