Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1929, Page 55

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1929, Page 55
Stefnir] Milli fátæktar og bjargálna. 149 eftir verður af afrakstri fram- leiðslurmar til efnaaukningar og annarar neyzlu. Má efalaust gjöra ráð fyrir, að hið háa verð- lag á þessum vörum, sem orsak- ast af tollunum, fæli menn frá talsverðum kaupum á þessum vör- um, sem annars mundu gerast, og að nokkuð af þeim mismun varðveitist til efnaaukningarinn- ar. En hér við bætist það, að nokkuð af tolltekjunum verður að efnaauka fyrir þjóðina í hönd- um ríkisins. Af tekjum ríkissjóðs gengur árlega töluverður hluti (meiri hluti) til neyzlu og eyðslu, en nokkur hluti gengur til að gjöra nýja vegi, brýr, síma, hús ýmiskonar, hafnir, bryggjur, vita og annað þess háttar, sem alt eru nauðsynlegir stofnfjármunir, en þurfa að vera til afnota fyrir almenning, og eru því gjörðir á ríkiskostnað. Eyðslumaðurinn.sem eyðir öllum tekjum sínum, og leggur ekkert fram af frjálsum vilja til efnaaukningarinnar í landinu, verður neyddur til þess með háum tollum á nautnavörum hans að láta nokkuð af hendi rakna til þessarar nauðsynlegu aukningar, sem ríkissjóður fram- kvæmir. Hugsum oss hinsvegar mann, sem eyðir engu í óþarfa og hefir þess vegna árlega tekjuafgang, sem hann leggur fram til efna- aukningar í þjóðfélaginu, annað hvort með umbótum og aukningu stofnfjármuna í eigin atvinnu- rekstri, eða með því að leggja á banka eða sparisjóð, þar sem aðrir geta fengið féð lánað til samsvarandi aukningar. Sé nú tekin nokkur upphæð af tekjum hans í beina skatta, þá minkar tekjuafgangur hans og framlag hans sjálfs til efnaaukningarinn- ar um sömu upphæð. Mikill hluti upphæðarinnar fer í eyðslu hins opinbera, aðeins nokkur hluti bjargast þjóðfélaginu með því að festast í nytsömum opinberum mannvirkjum. Mismunurinn á munaðarvöru- tollum og beinum sköttum er þá þessi, að því er snertir afleiðing- arnar fyrir efnahagsstarfsemi þjóðfélagsins: Tollar á munaðarvörum og ó- nauðsynlegum vörum auka þann hlutann af afrakstri atvinnu- rekstrarins í Iandinu, sem fer til efnaaukningar, en minka þann hlutann, sem fer til eyðslu. Bein- ir skattar gjöra hið gagnstæða. Enginn hugsandi maður ætti að geta verið í vafa um það, hvor stefnan er hollari fyrir efnalegar framfarir og aukna vellíðan í

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.