Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1929, Page 56

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1929, Page 56
150 Milli fátæktar og bjarg-álna. [Stefnir landinu. Ef sú stefnan fær yfir- hönd, að taka sem mest af tekj- um ríkissjóðs með beinum skött- um, svo að nauðsynlegfjármagns- aukning heftist um of, þá verða fyrstu afleiðingarnar kyrstaða í framleiðslu vegna vantandi fjár- magns til umbóta á atvinnutækj- unum, og næsta afleiðingin at- vinnuskortur með þar af leiðandi lækkun kaupgjalds, vegna þess að fé skortir í atvinnutæki og aðra stofnfjármuni handa við- auka fólksfjöldans. Skattamál má athuga og ræða frá ýmsu öðru sjónarmiði en þessu, þó rúmið leyfi það ekki í þetta sinn. En jeg get ekki stilt mig um að segja frá einum at- burði, sem sýnir það, að rétt til- finning í þessu efni er ekki út- dauð ennþá í sveitunum, þó kenn- ingar sósíalista hafi fengið of mikil áhrif á hugsunarháttinn í kaupstöðunum. . Lögin um tekju- og eignar- skatt skylda sérhvern mann til þess að greiða skatt í ríkissjóð af tekjum sínum, eftir settum reglum. Avinnurekandi má þó draga beinan rekstrarkostnað við atvinnuna frá heildartekjum sínum, en hann má ekki draga kostnað við aukningu eða um- bætur atvinnutækja sinna frá, hversu nauðsynlegt sem það hef- ir verið að leggja í þann kostnað. Þannig má bóndi draga tilkostn- að við fólkshald til búrekstrar frá tekjum sínum, en hann má ekki draga tilkostnað við jarða- bætur frá tekjunum. Lögin líta svo á, að sá bóndi, sem getur kostað jarðabætur af afrakstri búskaparins, hafi haft hreinar skattskyldar tekjur, sem verð- mæti jarðabótarinnar nemur, og þau heimta nokkuð af þeirri upphæð í ríkissj&ð. Alveg sama gildir gagnvart umbótum annara atvinnurekenda á atvinnutækj- um sínum. Útvegsmaður, sem þarf nauðsynlega að byggja skúr yfir aflann, fær ekki að hafa þá upphæð skattfrjálsa, sem til þess þarf, iðnaðarmaður, sem nauð- synlega þarf að fá sér smíðatól eða vinnuvél, fær ekki heldur að hafa þá upphæð skattfrjálsa, sem til þess þarf, o. s. frv. Eitthvað tveim árum eftir að byrjað var að framkvæma þessa löggjöf barst fjármálaráðuneyt- inu umkvörtun frá formanni einnar skattanefndar á Suður- landi um það, að það hlyti að vera eitthvað bogið við eyðublöð þau og reglugerð, sem skatta- nefndinni var skipað að fara eft- ir, þar sem bændum væri ekki

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.