Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.10.1929, Qupperneq 68
162
Slíkt mætti vel vera hegningar-
vert. Eru menn þá svo minnis-
lausir á alla viðburði liðins tíma,
að það sje nú gleymt, að ófrjáls
verzlun hefir drepið þúsundir
manna úr hungri á íslandi? —
Gamla einokunin var einmitt rétt-
lætt með þessu, að hún yrði að
haldast til þess að tryggja lands-
mönnum innflutning nauðsynja-
vara. Ef menn væri látnir frjáls-
ir, myndi ekkert flytjast. Og svo
dóu menn þúsundum saman úr
bjargarskorti, af því að öllum
var bannað að bjarga sér sjálfir.
Þetta vill nú Erlingur, og þetta
vilja sósíalistarnir innleiða aftur.
Og á þetta má vel vera að Fram-
sókn hefði fallizt, ef ekki hefði
þar komið til hagsmunir kaupfé-
laganna. Er það þó skárra en
ekkert þegar eiginhagsmuna hvat-
ir verða til þess að afstýra verra
glapræði.
Þá báru allir þingmenn sósíal-
ista fram þingsályktunartillögu í
sameinuðu þingi um einkasölu á
steinolíu, og fer það nú að verða
eitt af árlegum störfum þingsins
að drepa þessa sósíalistafirru í
þinglokin, um leið og kosnir eru
yfirskoðunarmenn landsreiknings-
ins og þess háttar.
Sósíalistar veittu svo Ingvari
drengilega aðstoð við það starf
[Stefnir
að herða á síldareinkasölunni, eins
og kunnugt er.
Þá má nefna frumvarp Sig-
urjóns og Haralds um það, að
ríkið fari að reka hvalveiðastöð
og þrjú hvalveiðaskip. Má verja
til þess alt að miljón króna. Er
það gott að þeir höggva ekki altaf
í sama farið um ríkisreksturinn
heldur finna upp á nýju og nýju
til þess að sýna og sanna, að
þeir stefna að ríkisrekstri á öll-
um sviðum atvinnulífsins, sjávar-
útgerð, verksmiðjurekstri, verzl-
un og landbúnaði.
önnur mál sósíalista.
Langt er frá því, að enn hafi
alt verið talið, sem sósíalistarnir
voru með í fórum sínum á þessu
þingi. Sósíalistarnir í neðri deild
komu með sínar vanalegu tillögur
um að gera alt landið að einu
framfærsluhéraði í frv. um breyt-
ing á fátækralögunum; ennfremur
breyting á verðtollslögunum, þar
sem farið er fram á að undan-
skilja ýmsar vefnaðarvörur verð-
tolli. Myndi það gera eftirlit og
framkvæmd laganna mjög erfitt.
Flutningsmenn áætluðu, að tekjur
ríkisins lækkaði 400—420 þús.
krónur, en tekjumissirinn yrði
náttúrlega miklu meiri ef fleiri
vörur slyppi hjá tollum í skjóli
Frá Alþrngi 1929.