Nýtt Helgafell - 01.12.1958, Blaðsíða 54
140
HELGAFELL
i'ir fjárpest. So er sá, sem ekki tekur undir
með þeim, ramma,sti apturhaldsmaður og
þaðan af verra, þar sem þeir sjálfir eru
römmustu apturfaramenn. Jeg álít það skyldu
mína að vera rammasti Pessimisti, Jón!
Capitulum um Góðtemplarafélagið. Eins og
þú veizt, þá eru hér allmargir í þessu félagi,
og eru heilagir að utan, en allir skitnir að
innan, einlægt verið að þefa, gruna, klaga,
áminna og reka út. Alltaf gánga skammirnar
og meiðyrðin í heimilisblaðinu (BJ) um hvern
þann sem ekki er í þessu heiðarlega félagi,
og svo eru þeir fokreiðir yfir að embættis-
menn ekki skuli vera í því. Nú ef t. a. m.
sýslumaður er í félaginu, þá geta þeir eptir
félagslögunum stefnt honum á fund og yfir-
heyrt hann, ef hann er grunaður, og þá á
sýslumaðurinn að standa eins og dæmdur
syndari frammi fyrir þessum „skríl“! Skyldi
þá sýslumaður hafa mikla Respect? Nú þó
að hann smakkaði vín, þá mundu þeir kann-
ske ekki þora að klaga hann, svo hann gæti
brotið eins og hann vildi. Guðlaugur sýslu-
maður er í þessu félagi, en jeg met það eins-
kis; hitt er verra, að bæði hann og fleiri þess
konar „stórverðugir“ æsa upp alþýðuna með
því að níða alla þá sem ekki vilja fylgja þeim.
Framhald um Gútemplara-Félag. Þetta er
það versta félag sem hér hefur komið og hef-
ur gcrt miklu mcira illt en gott, þó einstöku
ómenntaðir drykkjuhrútar hafi getað bjarg-
ast. á Jjví. En liér er það líka haft til að
koma J)ví fram sem þeirra stórforkar vilja,
J)ví þegar á að gefa atkvæði um eitthvað, })á
er Jæssum skríl smalað saman út um alla
bæi og þeim sagt fyrir hvað þeir eigi að gera,
svo að þetta er í rauninni Piibelregiment eða
skrílstjórn, ])ó BJ (sem er fanatískur
Gútemplaragosi) blaðri í ísafold um að „höfuð-
staðurinn hafi sýnt að hann vilji ekki hafa
veitingaleyfi“, en það er lýgi að „höfuðstaður-
inn hafi sýnt að liann vildi ekki hafa vín-
veitingaleyfi.“ (handa Breiðfjörð) — jeg kæri
mig ekkert um að Br. fengi veitingaleyfi, en
það er lygi að „höfuðstaðurinn“ lnifi ráðið
hér, það var bæjarskríll. Breiðfjörð tók lítið
eitt ofan í þá, sem einu gilti, og })að hefði
inátt vera meira, en hvað Þórhall snertir, þá
verður ekkert mál út af því sem Br. sagði.
Nú hefur annars hlé verið um nokkra stund
með skammirnar um okkur í ísafold, en
„heimilisblaðið“ sé jeg ekki.
Ennfremur greinarkorn um samgaungurn-
ar. Þjóðólfur hafði einhverstaðar slampast á
„Kringsjá“, þetta norska blað sem er rediger-
að af hálf-amerískum Húmbúgista. Alltso
kemur Þjóðólfur nú með þá framfara Ideu,
að við þurfum og munum sjálfsagt fá flugvél,
maður væri á henni rúman klukkutíma til
Akureyrar. Þarna flýgur Þjóðólfur nú í lopt-
inu (hann getur raunar ekkert um hvað flug-
vél muni kosta) á flugvélinni, en undir niðri
urgar og hvín járnbrautin — brýrnar á Olvesá
og Þjórsá eru þá ónýtar, því allir nota járn-
brautina — bara Þjóðólfur ekki reki sig á
Arnarfellsjökul eða einhvern Collega sem líka
væri á flugvél, verst væri ef það yrði Björn
ritstjóri, og þá skyldi hausunum slá saman,
og þá mundi kvikna í öllu og allt hárið
sviðna af höfðum þeirra með brennisteins-
fýlu og eldi og brennisteini rigna yfir ísland
eins og Sódóma og Gomorra.
Nú nú, nú er skrifað frá Winnipeg að Sig-
tryggur sé hættur við járnbrautarplanið,
púnkturinn er, að Englendingar liafa séð
hvað vitlaust það var, því þeir sjá betur
hvaða ástand er hér heldur en þessir Baví-
anar sem prédika fyrir fólkinu hér. Hvað
mörgum þúsund krónum er nú búið að eyða
til einskis til að ræða um þetta á þinginu?
Svo eru nú þessar auglýsingar um verðbréfin,
sem kosta í ísafold 2000 krónur og svo þar
til 5000 krónur í Berlíngi — þessum 7000
krónum er fleygt út til einskis eptir boði
þíngsins. Svo er stjórnarskráin höfð fyrir með-
al til að fá aukaþíngin, því allir vilja komast
á hvalfjöruna, alþíng er orðið að feitum at-
vinnuvegi — 700 krónur í ferðakostnað aust-
an úr Múlas. og svo segir ísafold að nú sjáist
hvað dýrt sé að ferðast á íslandi! Eins og