Nýtt Helgafell - 01.12.1958, Blaðsíða 60
146
HELGAFELL
ismans og aftur til þjóðernisstefnunnar, virðist
manni samt ávallt hafa verið trúr aðdáandi
Nietzsches hið innra með sér. Hinn storma-
sami lífsferill hans kemur manni svo sannar-
lega fyrir sjónir á þann hátt, að liann sé
óslitið æfintýri „ofurmennisins“, sem er sí-
fellt að leita að tækifærum til þess að prófa
drauma sinnar eigin dýrðar og vegsömunar.
Það væri þó með öllu ósanngjarnt að líta á
þetta sem yfirborðskenndan leik kvikmynda-
hetjunnar. Frá því að hann ritar La Tentation
de l’Occident og unz La Psychologie de l’Art
birtist, skeður þó meira en venjuleg skipting
á leiktjöldum. Arið 1926 var Malraux önnum
kafinn við að lýsa yfir sögulegu hruni Evrópu,
„þessarrar aldar, þegar aðeins dauðir sig-
urvegarar sofa.“ Kommúnísk uppreisn lit-
aðra þjóða heimsins virtist það eina, sem
veitti honum einhverja von; en hversu tví-
ræð og óljós var ekki hollusta hans við þann
málstað. í bók sinni La Condition Humaine
flögrar hann millum karlmannlegrar hug-
sjónar sinnar um nýtt bræðralag mannkyns-
ins og ölvaðrar þrár eftir athöfn og átökum,
aðeins vegna þeirra sjálfra. I bók sinni Le
Temys du Mépris ákallar hann bræðralags-
hugsjónina enn ákafar en áður og telur hana
vera eina og síðasta bjargráðið gegn sturlun
og örvæntingu níhilismans. Þessi samúð hans
átti sér stoðir í veruleikanum og var vígð
þeim fórnum, er náðu hámarki sínu, er óþekkt-
ur félagi bjargaði Kassner, kommúnistafor-
ingjanum, undan pyndingum nazista. En
framkvæmdi félaginn þessa dáð af eigin hvöt-
um eða eftir fyrirskipunum frá flokksforyst-
unni? Og getur nokkurt bræðralag livílt á
öðrum stoðum en frelsi og ábyrgð einstak-
lingsins? „Efnahagsleg þrælkun er óbærileg,“
var Alvear gamli látinn segja í L’Espoir,
„en ef við, til þess að geta gengið af henni
dauðri, neyðumst um leið til að efla og auka
þrælkun á sviði stjórnmálanna, eða hernaðar
eða trúarbragða eða lögregluvalds, hvað gerir
það mér til í samanburði við hitt?“ Það er
eins með byltingarnar og trén í skóginum,
þær verður að dæma eftir þeim ávexti, sem
þær bera, ekki þeim fórnum, sem þær kosta.
Ég veit, að þetta eru aðeins einstök dæmi
og það þarf fleiri en eina og jafnvel fleiri en
tvær svölur til þess að gefi gott sumar. En
þau benda þó á leið til frelsunar, örugga leið
út úr myrkviði nihilismans, og þessi leið á
sér upptök í þeim ákveðna og óútmáanlega
eiginleika, sem á sér djúpar rætur í eðli livers
manns.
En svó ég snúi mér aftur að efninu. Það
ákveðna, andlega ástand, sem ég vildi taka
til umræðu, er náskylt þeim dæmum, sem ég
hef nefnt. Eigi að síður fer það sínar eigin
götur og hefur sína sérstæðu þýðingu. Það á
sér til dæmis aldrei upphaf í lieimspekilegum
eða vísindalegum sannfæringum, heldur nærri
ávallt í einfaldri og ósjálfráðri uppreisn gegn
umhverfinu, annaðhvort innan fjölskyldunnar
eða félagsheildarinnar. Einn góðan helgidag
hættu sumir okkar að fara til messu, ekki
einungis sökum þess, að við álitum kenningar
kaþólskrar kirkju vera allt í einu orðnar fals-
kenningar, heldur sökum þess, að við fyllt-
umst leiða við návist þess fólks, sem sótti
kirkju með okkur, og við fórum að draga
okkur eftir félagsskap þeirra, sem ekki gengu
til kirkju. Uppreisn unga mannsins gegn því,
sem hefðbundið er, mun vera mjög algengt
fyrirbrigði á öllum tímum og í öllum löndum,
og ástæður lians eru áhorfandanum ekki alltaf
fullljósar. Eftir því hverjar aðstæðurnar eru
og hvernig atvikin ber að, getur þetta leitt
hinn unga mann út í að ganga í útlendinga-
hersveitirnar, fremja einhvern algengan glæp,
gerast kvikmyndaleikari, ganga í klaustur
eða aðhyllast einhverja.r öfgastefnur í pólitík.
Það, sem einkenndi okkar uppreisn, var val
okkar á félögum. Úti fyrir litlu þorpskirkj-
unni okkar stóðu hinir snauðu og landlausu
bændur. Það var ekki sálarlíf þeirra, sem
dró okkur til sín; það var neyð þeirra. Þegar
valið hefur einu sinni verið ákveðið, þá kem-
ur það, sem á eftir fylgir, af sjálfu sér, eins
og reynslan hefur margoft sýnt. An minnstu
tilraunar til andstöðu, já, jafnvel með hinum
alkunna ákafa nýliðans og trúskiptingsins,
fcllst maður á málfar, merki, skipulag, aga,
aðferðir, stefnuskrá og kenningar þess flokks,