Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.01.1963, Qupperneq 85
79
um sögusögn hinna og þessara, ef hann vantar allar sannanir
fyrir því að hún sé rétt.“
Myndu þeir vera færri skólasveinarnir, sem slíkt léku eftir
að rita rökstudda gagnrýni á ritgerð um fræðigrein, sem naum-
ast er kennd í skóla þeirra. Annars bendir það ef til vill dá-
lítið á andann í skólanum, að Stefán skuli ekki rita neitt um
grasafræði í rit Bandamannafélagsins, þar sem skólabræður
hans skrifa langar ritgerðir um fræðileg efni í sögu og bók-
menntum.
Áður hefur verið gerð nokkur grein fyrir Hafnardvöl Stef-
áns og háskólanámi og með hverjum atburðunr hann livarf
frá því.
Grasaþekking á Islandi.
Til þess að gera sér fulla grein þess, livert átak Stefáns var
í íslenzkri grasafræði, er rétt að geta stuttlega um, hversu hátt-
að var þekkingu manna í þeim efnum, um þær mundir, er
hann kemur frá námi og ræðst heim að Möðruvöllum.
Svo má kalla, að íslenzk grasafræði, sem önnur þekking á
náttúru landsins, hefjist með ferðum þeirra Eggerts Ólafsson-
ar og Bjarna Pálssonar og útkomu Ferðabókar þeirra um
miðja 18. öld. Frá þeim tíma var Ferðabókin undirstöðurit-
ið um íslenzka náttúrufræði fram undir lok 19. aldar, og enn
rná margt til hennar sækja. Þó er ekki hægt að segja að grasa-
fróðleikur Ferðabókarinnar sé allur frá þeim félögum kom-
inn. Áður en Ferðabókin kæmi á prent, höfðu ýmsir erlendir
menn komið hingað til lands, og eftir þeirn rannsóknum var
gerð plöntuskrá sú, sem Ferðabókinni fylgdi, eigi síður en
rannsókntim þeirra félaga. Fram eftir allri 19. öldinni ltélt það
áfram, að erlendir rnenn kæmu snöggvar ferðir hingað og gæfu
út piöntuskrár. Var allmikið orðið til af þessum skrám. En
þær áttu allar sammerkt í því, að nrargt vantaði í þær af þeim
tegundum, sem hér á landi vaxa, og það sem sagt var um út-
breiðslu þeirra og fundarstaði var allt í molum, og margt
harðla óáreiðanlegt, svo ekki sé fastar til orða tekið. Enn verra
var þó, að í skrám þessum úði og grúði af tegundum, sem
engin vissa var fyrir að yxu hér, og margar liafa áreiðanlega