Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.01.1963, Side 105
99
azt svo góða leiðarvísa, til að þekkja eftir íslenzkar plöntur.
Er vant að sjá að betur hefði mátt takazt ekki sízt, ef þess er
gætt, að hér er um brautryðjandaverk að ræða. Má sjá þess
glögg merki, að þar hefur fjallað um maður, sem í senn var
vísindamaður og kennari. Leiðin er vísuð þar eftir vörðum,
án Jjess slegið sé af vísindalegri nákvæmni umfram Jjað sem
nauðsynlega leiddi af því, að stærð bókarinnar voru takmörk
sett.
I Jjriðja lagi eru svo vaxtarstaðir og útbreiðsla. Hér er Jress
gerð giæin í fyrsta sinni um allar íslenzkar háplöntur í hvers
konar jarðvegi og umhverfi Jrær vaxi. Þær lýsingar eru svo
stuttorðar sem framast er unnt, svo að um nákvæm skil er ekki
að ræða. Ovíða hygg ég Jjó, að nokkuð sé ranghermt, en hitt
liggur í hlutarins eðli, að margt hefði mátt rekja nákvæmar.
Sama má segja um blómgunartíma plantna, sem hér er til-
greindur í lyrsta sinn um allan Jjorra tegundanna. En Jrað
verður að játa, að þekking vor í þeim efnum hefur ekki auk-
izt verulega síðan Flóra var samin. En Jjcss er jjar að gæta að
Stefán hafði sérstaklega lagt stund á að fylgjast með blómg-
unartíma plantna allt frá Jjví hann hóf gróðurrannsóknir sín-
ar. Er mikinn fróðleik að finna um Jrau efni í dagbókum Iians
og bréfum til Warmings.
Á engu sviði flytur Jró Flóra Stefáns jafnmikið nýtt og um
útbreiðslu tegundanna. Kom þar tvennt til. Stefán hafði fyrst-
ur manna kannað nær allt það, sem áður hafði verið skrifað
um íslenzkar plöntur, og hitt að hann hafði ferðast meira um
landið en nokkur gi'asafræðingur á undan honum, og var fyrsti
Islendingurinn, sem lagt hafði stund á þessa hluti, og átti því
miklu léttara með að átta sig á Jreim með skjótri yfirsýn en er-
lendir menn. Þótt hann liefði oftast farið hratt yfir landið, þá
hafði hann séð miklu mestan hluta Jjess með eigin augum. Og
hann hafði líka til uppbótar fengið margar nytsamar upplýs-
ingar frá lærisveinum sínum og fróðum mönnum, sem hann
kynntist á ferðum sínum. Verður ekki annað sagt en Jressi
þáttur flórunnar liafi vel tekizt eigi síður en liinir, en Jró hef-
ur við engan Jrein'a verið jafnmiklu bætt síðan, en slíkt er
bein afleiðing þess, að unnt liefur verið að grannskoða nú
7*