Félagsbréf - 01.07.1957, Síða 20

Félagsbréf - 01.07.1957, Síða 20
18 FELAGSBREF verður þú aldrei látin svara til saka, heldur málstaðurinn sem á þig. Og hvað sem þú kannt að ávinna verður það einnig eign málstaðarins". Herborg fórnar málstaðnum öllu, og Ormar þráir að gera það sama, en getur það ekki, hefur sennilega ekki manndáð í sér til þess: „Lífið er mér meira virði en ykkar loforð. Fórn mín yrði stærri en fyrirheitið. Ég get ekki fórnað af því að ég á of mikið. Og því mun mér ekkert veitast“. * Samt er hann að berjast við að fórna á blótstalli fremur óljóss málefnis. En fórn hans er fölsk. Hann yfirgefur að vísu heimili foreldra sinna, en það er lítil fórn, því að heimilislífið er rotið og innantómt og er að leysast upp. Hann fer að heiman og út í lönd, og það er sannarlega ferð án fyrirheits; hann flækist um, virðir fyrir sér byltingu og múgæsingafundi, án þess að vera nógu mikill byltingarmaður til þess að skipa sér afdráttar- laust undir hin rauðu merki. Hann veður í peningum eftir sem áður, stráir meira að segja peningaseðlum um járnbrautarpalla úti þar. Stærsta fórnin virðist eiga að vera sú, er hann segir Védísi upp með miklum hátíðleik og heimspekilegum vangaveltum. En höfundi tekst bara ekki að sannfæra lesandann um það, að Ormar unni Védísi neitt sérstaklega heitt, og ekki verður séð, að þessi fórn snerti hann sérstaklega djúpt. Alvöruna og til- finningahitann vantar, og hér gerist því aðeins harmleikur tóm- leikans, því að Ormar er viljaslappur og tilfinningasljór sveim- hugi, sem berst eins og rekald milli andstæðra skoðana. Hann er útþynntur skuggi af Steini Elliða í Vefaranum. (Menn taki eftir því, að hér kemur aðeins bróðirinn, Haukur Hilmar, í stað fóðurbróðurins, Örnólfs, — báðir fjármálamenn og braskarar, sem hirða upp af götu sinni unnustuna, sem söguhetjan hefur hlaupizt á brott frá við lítinn orðstír). En samanburðurinn á Steini Elliða og tvífara hans, Ormari Arnljóti (ætli það sé til- viljun, að báðir ganga undir tveim nöfnum?), verður þeim síð- ari til lítillar fremdar; það er eins og að jafna saman skagfirzk- um stóðfola og tömdum múlasna. Stundum minnir Ormar dálítið á Lillelord Johans Borgen,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.