Félagsbréf - 01.07.1957, Page 34
32
FELAGSBREF
En ... en í Reykjavík?
Það fæst hvergi. Ég bjó það til.
Er það satt?
Auðvitað. Ég bjó það til fyrir löngu.
Ha, er hægt að búa til fræ, málfræ?
Já, afar og ömmur og pabbar og mömmur geta það stundum.
Ef þeim þykir vænt um drenginn.
Hvernig er það?
Afi sýndi honum nokkur korn.
Hvenær .. . hvenær ætlarðu að sá því?
I nótt.
1 sálina mína?
Já. Ég sái því á meðan þú sefur.
Er hún þá úti?
Sálin?
Já.
Já.
Eru þeir farnir að spretta?
Hverjir?
Vondu stafirnir?
Já.
Get ég sagt þá á morgun?
Ekki kannski á morgun. Fræið spírar seint. Einn góðan veð-
urdag skjóta þeir samt upp kollinum, stafirnir tveir, sem eftif eru.
Þarf ekki að vökva þá?
Jú. Það hef ég stundum gert.
Hvernig?
Farðu nú að sofa.
Hvatur lokaði augunum stundarkorn, svo galopnaði hann þau,
horfði á afa sinn og spurði:
Ertu búinn að sá?
Nei, lokaðu augunum og farðu að sofa.
Hvatur hlýddi, og vær svefnhöfgi færðist smám saman yfir
hann. Ennþá einu sinni opnaði hann samt augun, dregin móðu,
og spurði:
Hvað, afi?