Félagsbréf - 01.07.1957, Page 54
52
PÉLAGSBRÉF
Áhrif þín voru eins og stormur, sem ekki hlífir smárunnum.
Þeir sem voru óþroskaðir með þér, bognuðu eins og stráin. —
Hvort þú viðurkennir uppskeru mína þegar til kemur, fer
sem má-------en það mun ég kalla sigur minn, ef þú gerir það.
En höll þín
á hugans björgum
mun standa alhrein
um aldir skálda.
Braglind þín
mun djúp
þó þorni tjörn
hjá þjóð.
Því listgyðja
geymir ask þinn.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Skáldverk Einars Benediktssonar eru leiðarmarkið í nútíð-arbók-
menntum vorum. Þau benda aftur, til alls þess djarfasta og mátt-
ugasta í hugsun og tungu þjóðarinnar frá upphafi. í þeim mæt-
ast íslenzk frummenning og erlend hámenning, og svo benda
þau fram, á þær torsóttu leiðir, sem skáldum vorum og rithöf-
undum er ætlað að sækja, til mesta frama.
Þökk sé Væringjanum, sem sigldi skipum sínum heim í höfn,
hlöðnum andlegum auði. Heill sé meistaranum, sem aldrei hvik-
aði sjónum af hæstu takmarki listar sinnar.
Sigurður Nordal.
Daginn eftir, 1. nóvember, birtist frá Tryggva Þórhallssyni á fremstu
siðu Tímans þessi kveðja:
Einar Benediktsson varð sextugur í gær.
Ættarljómi er yfir honum því að hann er sonur eins hins