Félagsbréf - 01.07.1957, Page 131
RÓK
MAMÐARINS
Þegar nýskipan útgáfumála Almenna
bókafélagsins er komin til fram-
kvæmda á þann hátt, sem vikið er
að 2. kápusíðu og í grein aftast í
þessu hefti, er hugmyndin að senda út
eina bók í mánuði hverjum. Meðal
félagsmanna verður hún væntanlega
nefnd bók mánaöarins eða mánaðar-
bókin.
*
Meginþorri mánaðarbókanna verður
væntanlega gefinn út af Bókafélag-
inu sjálfu, en þó er hugmyndin, að
félagið gefi áskrifendum kost á úr-
valsbókum, sem aðrir útgefendur
gefa út, og þá fyrir mun lægra verð
en hið almenna bóksöluverð. Yrði
val slíkrar bókar skoðað sem sérstök
viðurkenning bókmenntaráðs.
*
Tilkynning um væntanlegar mánað-
arbækur verður send hverjum ein-
stökum félagsmanni með tveggja
mánaða fyrirvara og skorað á hann
að tilkynna, hvort hann óskar að fá
bókina. Ef hann óskar að hafna
henni, þarf hann aðeins að setja í
póst ófrímerkt spjald, sem félagið
sendir honum. Jafnframt verður þó
hægt að fá aðra bók í stað bólcar
mánaðarins, ef þess er óskað.
Með þessari nýbreytni er náð því
marki, að félagar þurfi aðeins að
taka þær bækur, er þeir girnast sér-
staklega.
VI. M K V \ A UÓKAFÉLAGIII