Sveitarstjórnarmál - 01.02.1988, Qupperneq 64
FULLTRÚARÁÐSFUNDIR
Fulltrúaráö Sambands íslenzkra
sveitarfélaga var kvatt saman til
aukafundar22. janúartil þess aö láta
í té álit sitt á frumvarpi til laga um
breytingar á verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga, þ.e. þær breytingar,
sem gert var ráö fyrir viö afgreiðslu
fjárlaga fyrir yfirstandandi ár. Hafði
félagsmálanefnd neðri deildar Al-
þingis óskaö eftir því í bréfi til sam-
bandsins, aö fulltrúaráð þess léti sér i
té álitsgerð um frumvarpið.
Á fundinum var efni frumvarpsins
rækilega rætt, og aö umræðum lokn-
um samþykkt svofelld ályktun meö
15 atkvæöum gegn 5:
„Fulltrúaráð og stjórn Sambands
íslenzkra sveitarfélaga komu saman
til aukafundar í Reykjavík föstudag-
inn 22. janúar vegna erindis félags-
málanefndar neöri deildar Alþingis
um álitsgjörð um frumvarp til laga um
breytingar á verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga á þingskjali nr. 224,
194. mál neöri deildar.
Stjórn sambandsins haföi ályktað
um málið á fundi sínum 16. október
sl. sem hérsegir:
„Stjórn Sambands íslenzkra sveit-
arfélaga hefur fjallað um tillögur um
fyrirhugaða verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga, er fram koma í fjár-
lagafrumvarpi fyrir árið 1988.
Stjórnin leggur áherzlu á, að með
verkaskiptingartillögum í frumvarp-
inu er stigið mikilvægt skref í átt til
frekari breytinga á verkaskiptingu rík-
is og sveitarfélaga.
Jafnframt gerir stjórnin þá kröfu,
að samhliða verði tryggðar nýjartekj-
urtil að mæta þessum verkefnum.
Stjórnin ítrekar þá kröfu sveitarfé-
laga, sem margoft hefur verið sett
fram, að skerðing á tekjum jöfnunar-
sjóðs verði afnumin og þaki létt af
tekjum sjóðsins.
Stjórnin telur nauðsynlegt, að
samhliða þessum aðgerðum verði
gengið frá uppgjöri vegna samnings-
bundinna verkefna, sem lokið er eða
unnið að og varða þennan verkefna-
flutning."
Fulltrúaráðið tekur undir þá skoð-
un stjórnarinnar, að mikilvægt sé að
einfalda verkaskiptingu ríkis og sveit-
58 SVEITARSTJÓRNARMÁL