Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Blaðsíða 70

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Blaðsíða 70
484 Umfer&aröryggismál Margrét Sœmundsdóttir, frœðslufulltrúi Umferðarráðs: Það sem er bami fyrir bestu á að vera okkur efst í huga Frá árinu 1990 hefur verið bundið í lögum að barn yngra en 6 ára skuli nota sérstakan örygg- is- og verndarbúnað ætlaðan börnum. ÁRVEKNI, Slysavarna- félagið Landsbjörg og Umferðar- ráð hafa undanfarin sex ár kannað öryggisbúnað barna í bílum. Félagar í deildum Slysa- varnafélagsins Landsbjargar og nemendur á 1. ári í Kennarahá- skóla íslands, leikskólaskor, að- stoðuðu við gerð könnunarinnar. Könnunin fór fram að morgni dags fyrir utan 68 leikskóla í 31 sveitarfélagi. Kannaður var ör- yggisbúnaður hjá 2085 börnum. Skoðað var hvers konar öryggis- búnað barn notaði, hvar í bílnum það sat og hvort ökumaður not- aði bílbelti. Þá var athugað sér- staklega hvort barn sæti þar sem uppblásanlegur öryggispúði var fyrir framan sætið. Því miður Greinarhöfundur, Margrét Sœ- mundsdóttir, er leikskólakeimari að mennt. Hún erfrœðslufulltrúi hjá Umferóarráði með umferðár- frœðslu og umferðaröryggismál barna sem sérsvið. voru 47 leikskólabörn í fram- sætum bílanna þar sem öryggis- púði var. Öryggispúði er góður verndarbúnaður fyrir fullorðna sem nota bílbelti en hann er lífs- hættulegur börnum og smávöxnu fólki sem er lægra en 140 sm og undir 40 kg að þyngd. Hættan felst í því að við árekstur þenst púðinn út af svo nriklu afli að lendi hann á höfði og efri hluta líkama barns getur það leitt til alvarlegra áverka og jafnvel dauða. Barn má ekki undir nokkrum kringumstæðum sitja í framsæti bíls andspænis öryggis- púða. Nokkrir foreldrar sögðu að þeir hefðu ekki hugmynd um að börnum stafaði hætta af öryggis- púðanum en aðrir vissu urn hætt- una en báru fram margs konar afsakanir, eins og að barnið sæti þarna ekki venjulega eða að um stutta vegalengd væri að ræða. Pabbi minn notar aldrei bílbelti Börn verða miður sín ef pabbi eða mamma fara ekki rétt að. Þetta urðu þeir sem fram- kvæmdu könnunina varir við. Barn sagði t.d.: „Eg var búin að segja þér að ég mætti ekki vera í framsætinu.“ Eða: „Ég var búin að segja þér að þú gleymdir barnabílstólnum heima.“ Ennfremur sögðu sum börnin: „Pabbi minn (mamma mín) notar aldrei bílbelti þótt ég segi honum að gera það.“ Börn herma eftir foreldrum sínum og taka ósjálfrátt upp hætti þeirra. Þess vegna er mikilvægt að for- eldrar séu góð fyrirmynd og kenni börnum siði sem þau búa að allt lífið. Það þarf að verða barni að vana að nota öryggis- búnað rétt eins og að bursta tennur eða þvo sér um hendur. Samanburður milli ára, 1996-2001. Myndin sýnir hve mörg prósent barna notuðu ein- hvern öryggisbúnað við komu í leikskóla. Grænt: notuðu öryggisbúnað. Rautt: börn laus í bifreið án öryggisbúnaðar. Gult: notuðu elngöngu bílbelti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.