Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Side 84
Fræðslumál
Umsjón með náminu er í
höndurn þriggja manna náms-
stjórnar, þ.e. tveggja fulltrúa Ey-
þings og eins fulltrúa RHA. Sí-
menntunarstjóri RHA sér um
framkvæmd námsins.
Reynslan eftir 1. önn
Námið var auglýst sl. sumar
og var fjöldi umsókna langt um-
fram væntingar. Nokkur affoll
hafa síðan orðið svo sem vænta
mátti. A haustönn voru þannig
29 nemendur við nám en 25
nemendur halda áfram náminu á
2. önn. í nemendahópnum er
fólk frá fyrirtækjum, sveitarfé-
lögum og ríkisstofnunum á aldr-
inum 37 til 55 ára. Reynslan
hefúr sýnt að nemendur verða að
ætla sér talsverðan tírna í námið,
s.s. til úrlausnar verkefna milli
námslota. Að lokinni fyrstu önn
er nú komin nauðsynleg festa í
skipulagið og nemendahópinn.
Almennt virðast nemendur því
ánægðir hvernig til hefúr tekist
og horfa bjartsýnir á framhaldið.
Ætla má í Ijósi fenginnar reynslu
að boðið verði upp á námið á ný
þegar þessi hópur hefúr útskrif-
ast.
Hópvinna í verkefnisstjórnun. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Árni K. Bjarnason, sveit-
arstjóri Svalbarðsstrandarhrepps, Magnús E. Finnsson, tæknifræðingur hjá Norðurorku,
Björn Magnússon, forstöðumaður FMR á Akureyri, Pétur Þór Jónasson, Sigurgeir
Steindórsson, framkvæmdastjóri Vélsmiðju Steindórs á Akureyri, og Pétur Arnar Pét-
ursson, bæjarfulltrúi á Blönduósi.
utan skilgreinds námsefnis.
Kennt er i fjórum eða fimm
lotum á önn til að auðvelda fólki
að skipuleggja námið samhliða
starfi sínu og til að auðvelda
fólki að sækja námið um lengri
veg. Þegar kennt er í fjórum
lotum, eins og var nú á haust-
önn, hefst kennslulota eftir há-
degi á miðvikudegi og lýkur síð-
degis á laugardegi. Hverjum
námsáfanga lýkur með prófi eða
mati á verkefnum.
Til miðlunar á kennsluefni og
til að auðvelda nemendum sam-
skipti sín á milli og við kennara
hafa þeir aðgang að WebCT sem
er námsumhverfi á vefnum.
Námsgjald er 285.000 kr. fýrir
námið í heild. Hér er því um að
ræða dýrt nám og eðlilegt að
nemendur geri kröfú um góða
þjónustu. Gerðar eru því miklar
kröfur til kennara, m.a. í ljósi
þeirrar áherslu sem er á hagnýtt
gildi námsins.
Aðalfundur Grunns
í febrúar 1999 stofnuðu for-
stöðumenn skólaskrifstofa,
fræðsluskrifstofa og fræðslu- og
menningarsviða hjá sveitarfé-
lögum félag sem þeir kölluðu
Grunn.
Félagar geta orðið allir þeir
sem veita forstöðu málefnum
grunnskóla fyrir eitt eða fleiri
sveitarfélög. Aður hafði þessi
hópur átt óformlegra samband
allt frá haustinu 1996.
Tilgangur félagsins er að auka
kynni og stuðla að samstarfi fé-
lagsmanna. Að efla áhrif þeirra
stofnana sem félagar vinna fyrir
og vinna að framþróun og um-
bótum í skólastarfi.
A aðalfundi félagsins sem
haldinn var í Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur hinn 7. desember
fór fram stjórnarkjör.
I stjórn voru kosnir Arthur
Morthens, forstöðumaður þjón-
ustusviðs Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur, sem er formaður,
Eiríkur Hermannsson, fræðslu-
stjóri Reykjanesbæjar, ritari, og
Þorlákur Helgason, fræðslustjóri
Sveitarfélagsins Árborgar, gjald-
keri.
Fráfarandi stjórn skipuðu Sig-
urbjörn Marinósson, forstöðu-
maður Skólaskrifstofu Austur-
lands, Helga Guðmundsdóttir,
forstöðumaður fræðslu- og
menningarsviðs Austur-Héraðs,
og Stefán Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri fræðslu- og félags-
sviðs HornaQarðar.