Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Blaðsíða 32
Héra&sskjalasöfn
Starfsemi í svona skjalasafni er umsvifamikil og
hlutverk hins nýja safns er fjölþættara en hins
gamla. Nú er ekki aðeins um að ræða bæjarskjöl
heldur líka skjöl frá fyrirtækjum í Kópavogi, ein-
staklingum og félögum. Allt fer þetta eftir reglu-
gerð um héraðsskjalasöfn og tvennum lögum, ann-
ars vegar lögum um Þjóðskjalasafn Islands og hins
vegar upplýsingalögum. Hvort tveggja eru sívax-
andi þættir, upplýsingaþjónustan í daglegum rekstri
sveitarfélagsins annars vegar og hins vegar söfnun
og varðveisla sögulegra heimilda. Kópavogur hefur
stækkað mjög ört, og það ýtti ásamt öðru á stofnun
þessa nýja safns, héraðsskjalasafnsins. Þjóðskjala-
vörður, Olafur Asgeirsson, ritaði Kópavogsbæ bréf
hinn 2. janúar 1998 um skjalasafnsmálin þar sem
hann gaf í raun tvo kosti: Annars vegar var sá
kostur að stofna héraðsskjalasafn sem hann rnælti
sterklega með. Ef bærinn hefði ekki treyst sér til
þess þá óskaði þjóðskjalavörður eftir viðræðum um
skjalaskil frá Kópavogi til Þjóðskjalasafnsins. Er-
indi þessu var vísað til umsagnar bæjarskjalavarðar
og bæjarlögmanns og samkvæmt tillögu þeirra
varð fyrri kosturinn fyrir valinu. Það þótti eðlilegt
og mjög við hæfi að þetta stór bær byði upp á slíka
þjónustu sem þessa. Menn vildu hafa skjölin sín
heima í héraði. Almenningur hefur þegar leitað
mikið til okkar og reynsla annarra sveitarfélaga
hefur verið sú. T.d. hefur reynsla Borgarskjalasafns
í Reykjavík og héraðsskjalasafna víða um land
verið sú að innansveitarfólk hefur komið skjölum
sínum til varðveislu hjá téðum söfnum. Ef fólk vill
er hægt að takmarka aðgang að slíkum skjölum
eftir samningum við hvern og einn. Upplýsingar á
ýmiss konar formi eru varðveittar í safninu sem
hafa sjórnsýslulegt eða sögulegt gildi, nema hvort
tveggja sé. Sem dærni má nefna rafræn gögn, auk
alls konar pappíra og mynda, svo og varðveitir
safnið hljóðupptökur. Safnið er farið að starfa af
fullum krafti og er fólk velkomið þótt enn sé verið
að flytja og vinna nokkra undirbúningsvinnu.
Safnið var vígt hinn 12. desember sl.
1'llllll.lJ
DANlEL ÓLAFSSON EHF.
SKÚTUVOGUR 3 • 104 REYKJAVlK • SlMI: S80 6600 • FAX: 580 6886
Natfang: gardarOdanol la • Heimatida: rrww danor n
Kaffivélarnar sem auðvelda þér lífið
I afitesse
Merrild kaffikerfi býður heildarlausn fyrir
fyrirtæki, veitingahús og stofnanir I kaffiþjónustu
Cafitesse-kerfið
Með því að nýta sérstaka kosti
Cafitesse-vélarinnar, kaffisins og
hvernig það er pakkað er fljótlegt að
laga fínasta gæðakaffi.
Notkun vélarinnar er auðveld og
viðhald er I lágmarki. Þannig er unnt
að bera fram mikið magn af nýlöguðu
úrvalskaffi með því að þrýsta á hnapp,
á öllum tímum sólarhringsins. Engar
óhreinar kaffisíur sem þarf að hreinsa,
enginn kaffikorgur sem þarf að fleygja.
Hvort sem þörf er á 2 bollum eða 200
á klukkustund hefur aldrei verið
auðveldara að bjóða hágæöakaffi.
Gæði og magn
• Nýlagaö Merrild kaffi í háum gæöaflokki
• Bolli af nýlöguðu kaffi á 2 sekúndum og
kanna á 10 sekúndum
• Sérlega auðveld í meöförum
• Ekkert fer til spillis
• Sáralítil þrif og viðhald
• Einkar örugg í rekstri
• Sérstakur krani fyrir tevatn
• Yfirsýn og eftirlit með kostnaöi
Cafitesse-kerfið býöur viðskiptavinum
upp á 3 leiöir til að notkun henti sem flestum,
þ.e.a.s. kaup, leiga eða vél lánuö.