Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Blaðsíða 96
Umhverfismál
Næsta sumar leggur verkefnisstjórn Fegurri
sveita áherslu á:
• aðstoð við þátttakendur.
• áróður fyrir bættri umgengni.
• heimsóknir til bænda.
• fræðslu og ráðgjöf í vatnsveitu- og frárennslis-
málum.
• greinargerðir, en i bráðabirgðaákvæði III segir að
sveitarstjórnir skuli eigi síðar en árið 2002 hafa
lokið úttekt á ástandi skv. 44. grein nýju náttúru-
verndarlaganna og skilað Náttúruvernd ríkisins
greinargerð þar að lútandi. Þessar greinargerðir
verða mikilvægur gagnagrunnur fyrir ákvarðanir
í sambandi við aðstoð af hálfú ríkisins.
• vandað fræðsluefni. Stefnt er að því að sveitarfé-
lög landsins fái möppu með aðgengilegu
fræðsluefni um umhverfismál í sveitum næsta
vor. Greinar verða birtar í Handbók bænda og
Bændablaðinu.
• tengingu við gæðastýringarverkefni, t.d. í sauð-
íjárrækt, búsáætlanagerð og góða samvinnu við
ráðunauta, spilliefnanefnd, úrgangsnefnd, Holl-
ustuvernd, félagasamtök og aðra tengiliði.
Lokaorð
Það er keppikefli þeirra sem að verkefninu
standa að sveitir landsins verði hvarvetna til fýrir-
myndar í umhverfismálum. Tengiliðum við verk-
efnið hefur fjölgað ár frá ári, þeir eru nú hátt á
annað hundrað og þar af eru 67 sveitarfélög. Mikil-
vægt er að sem flest sveitarfélög skrái sig í verk-
efnið, það er þeiin að kostnaðarlausu og þátttöku
fylgja engar skuldbindingar.
Frekari upplýsingar veita:
Ragnhildur Sigurðardóttir verkefnisstjóri.
Netfang: ragnhildur.umhverfi@simnet.is
Sími: 435 6695/NMT: 851 1646/GSM: 848 2339.
Þórunn Gestsdóttir, fulltrúi Sambands íslenskra
sveitarfélaga í framkvæmdanefnd Fegurri sveita.
Netfang: thorunn@borgarf]ordur.is
Sími: 435 1140/GSM: 898 6074.
Góð reynsla af endurvinnslu á pappír
Tilraunaverkefnið Pappírstæt-
ari hófst 1. desember sl. á Dal-
vík. Verkefnið sem tengist Stað-
ardagskrá 21 er samvinnuverk-
efni félagsþjónustu Dalvíkur-
byggðar og umhverfissviðs. Fyrr
á árinu höfðu hestamenn í sveit-
arfélaginu bent á að einfalt væri
að breyta rusli í eftirsóttan varn-
ing, pappírskurl. Einnig að
ávinningurinn af endurvinnsl-
unni væri ómetanlegur.
Kaup á pappírstætara voru
styrkt með framlagi úr Fram-
kvæmdasjóði fatlaðra.
Starfsemin er í húsnæði At-
vinnuþróunarsjóðs við Hafnar-
braut 7 þar sem vinnuaðstæður
eru góðar. Söfnun á pappír hefur
gengið ágætlega. Settir voru upp
íjórir gámar fyrir almenning og
íyrirtæki.
Avinningur verkefnisins er
margvíslegur, m.a. ákjósanleg
störf fyrir fatlaða, sparnaður
vegna flutnings á sorpi og urð-
Elin Björk Unnarsdóttir lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð 1983 og
cand.mag.-prófi i jarðeðlisfrœði og veðurfrœði
ásamt uppeldis- og kennslufrœði í raungreinum
og stœrðfræði frá Háskólanum í Ósló 1990.
Hún er nú framhaldsskólakennari við Verk-
menntaskólann á Akureyri með búsetu á Dalvík.
unargjaldi og ekki síst sjálf end-
urvinnslan á pappír. Starfsmenn
anna ekki eftirspurn á pappírs-
kurlinu sem hestamenn og
bændur nota til að þurrka upp
stíur. Mikil þörf er íyrir fram-
leiðsluna. Kostnaður við að
koma verkefninu af stað var til-
tölulega lítill.
Samþykkt hefur verið að starf-
rækja tilraunaverkefnið í hálft ár
til reynslu. Fyrirtæki jafnt sem
einstaklingar hafa ávinning af
því að starfseminni verði haldið
áfram og er útlit fyrir að svo
verði.
Innan tíðar verður hægt að fá
upplýsingar um verkefnið á
heimasíðu Dalvíkurbyggðar á
slóðinni http://www. dalvik. is
Elín Björk Unnarsdóttir,
framhaldsskólakennari