Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Blaðsíða 56

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Blaðsíða 56
Erlend samskipti Valgerður Sigurðardóttir, forseti bœjarstjórnar Hafnarfjarðar: Frá vinabæjamóti í Finnlandi HafnarQörður er eins og fleiri sveitarfélög í góðum vinabæjasamskiptum. Bærinn er í keðju norrænna vinabæja sem eru Frederiksberg í Danmörku, Uppsala í Svíþjóð, Bærum í Noregi og Hámeenlinna í Finnlandi, svo og Tartu í Eistlandi. Hafnarfjörður á mjög góð og mikil samskipti við Cuxhaven í Þýskalandi; þá eru vinabæjatengsl við Þvereyri í Færeyjum og Jakobs- havn/Ilulissat á Grænlandi. Einnig á Hafnaríjörður Baoding í Kína sem vinabæ. Norrænu vinabæirnir halda reglulega vinabæja- mót annað hvert ár, nú síðast í Hámeenlinna í Finnlandi dagana 24. til 27. maí sl. Eins og venja er sækja slík mót kjörnir fulltrúar bæjarfélagsins, embættismenn, æskulýðs-, tónlist- ar- og íþróttafólk og fulltrúar Norræna félagsins í Hafnarfirði. Valgerður Signrðardóttir lauk gagnfrœðaprófi frá Héraðsskólanum í Reykholti 1970 og sótti framhaldsnám í sjávanitvegsfrœðum við Endunnenntunarstofnun 1995. Hún hefur síðan starfað sem fiskverkandi, í frystihúsi og sláturhúsi, við afgreiðslu- og skrifstofu- störf og verið framkvœmdastjóri Kvenréttindafé- lags íslands (KRFÍ). Hún varfulltrín Sjálfstœðis- flokksins í stjórn KRFÍfrá 1985 til 1992 og hefur verið forseti Rótaiýklúbbs, formaður Sinawikk- lúbbs og átt sœti í stjórn Vorboða, félags sjálfstœð- iskvenna í Hafnarfirði og hefur átt sœti í stjórn Hafnar, öldrunarsamtaka, frá 1999. Valgerður var varafulltrúi í hafnarstjórn í Hafnarfirði frá 1990 til 1994, aðalfulltrúi frá 1994, þar af formaðurfrá 1994 til 1997 ogfrá 1998 og í stjórn Hafnasam- bands sveitarfélaga frá árinu 2000. Hún hefur átt sæti í bœjarstjórn Hafnarjjarðarkaupstaðarfrá 1994 og í bæjarráði og verið forseti bœjarstjórnar frá 1998. Hún var í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvœðinu (SSH) frá 1994 til 1998. Tilgangur með vinabæjasamskiptum er margs konar, t.d. að fulltrúar bæjanna kynni fyrir hver öðrum nýjustu áherslur til bættrar þjónustu, skil- virkari stjórnsýslu eða annars konar framfarir sem til nýmæla teljast í sveitarfélögunum hverju sinni; þá er öflugt samstarf meðal unga fólksins, svo sem samstarfsverkefni í tónlist, dans og leikjum og keppni í iþróttum. Þá er einnig fjallað um samstarf norrænu félaganna í löndunum. Hámeenlinna eða Tavastehus, eins og borgin heitir á sænsku, er um það bil 100 km frá höfúðborginni, Helsinki, íbúar þar eru rúml. 46000 og þar fæddist tónskáldið Síbelíus og eru heimamenn stoltir af því. Bærinn er talinn elsti bær í Finnlandi en kaup- staðarréttindi fékk hann fyrst árið 1639. Þegar allir fulltrúar vinabæjanna sem áður eru nefndir voru komnir voru þar hátt á annað hundrað gestir. Dagskrá var kynnt í hádegi á fimmtudeginum; var hún nokkuð þétt þar sem tíminn var nýttur til hins ýtrasta. Klukkan ljögur sama dag var setningarat- höfn og fluttu þar fulltrúar Norrænu félaganna kveðjur og þakkir. Athöfnin fór fram á markaðs- torgi bæjarins, þá þegar voru látin boð út ganga til þeirra sem áttu heimboð í heimahús nokkurra gestgjafa, en það hefúr verið siður þar sem því hefur verið við komið að bjóða sem flestum gestum í heimahús. Þær heimsóknir mynda oft nánara samband og hef ég eignast í slíkum heim- sóknum vini sem ég er í skriflegu sambandi við á milli móta. í dagskránni stóð þátttakendum til boða konsert sem Sinfóníuhljómsveitin í Bærum í Noregi hélt; var konsertinn góður enda stjórnandinn sérlega skemmtilegur stjórnandi og kynnir um leið. Okkur var boðið í siglingu, en þrátt fyrir fegurð landslagsins var okkur Hafnfirðingum nokkuð kalt og héldum við á okkur hita með góðum bröndurum og var mikið hlegið. Pallborðsumræður fóru fram á fostudagsmorgni. Fulltrúar bæjanna kynntu þar nýjustu áherslur og reynslu í rekstri sinna sveitarfélaga til bættrar og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.