Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Blaðsíða 97
Umhverfismál
Stefán Gíslason, verkefnisstjóri Staóardagskrár 21 á Islandi:
N orðurlandaferð
íslensks Staðardagskrárfólks 2001
Síðustu þrjú haust hefur verkefnisstjóri Staðar-
dagskrár 21 á íslandi staðið fyrir kynnisferðum ís-
lensks Staðardagskrárfólks til Norðurlandanna. Til-
gangurinn er að gefa þeim sem vinna að þessum
málum í íslenskum sveitarfélögum tækifæri til að
kynnast því sem hæst ber í starfi nágrannaþjóð-
anna á hverjum tíma. Norðurlandaþjóðimar,
einkum þó Svíar og Danir, hafa um árabil verið í
fararbroddi á heimsvísu í Staðardagskrárstarfinu,
og eðlilega geta íslendingar því margt lært af
þessum frændum sínum. Auk heldur liggur beinast
við að leita fanga hjá norrænum þjóðum vegna
þeirra sterku tengsla sem þar eru til staðar, m.a.
vegna þátttöku íslenskra sveitarfélaga í norrænu
vinabæj asamstarfi.
Þriðja Norðurlandaferð íslensks Staðardagskrár-
fólks var farin dagana 14.-21. október 2001. Þátt-
takendur voru fimm talsins frá þremur sveitarfé-
lögum, auk verkefnisstjóra Staðardagskrár 21 á ís-
landi, sem jafnframt var fararstjóri. Aðalviðfangs-
efni ferðarinnar var þátttaka i Synergi-21, lands-
ráðstefnu um Staðardagskrá 21 í Stavanger í Nor-
egi, en einnig var komið við í Gautaborg og sveit-
arfélaginu Tanum á vesturströnd Svíþjóðar. í þess-
ari grein verður sagt stuttlega frá nokkrum helstu
viðburðum ferðarinnar.
Heimsókn til Gautaborgar
A fyrsta degi ferðarinnar dvaldist hópurinn í
Gautaborg og heimsótti nokkrar stofnanir og fyrir-
Stefán Gíslason var kynntur í
4. tbl. 2001.
Tveir af sex starfsmönnum Ecoplan í Gautaborg á fundi með ís-
lensku Staðardagskrárfólki, María Losman, sérfræðingur í
grænum innkaupum, og Finnur Sveinsson, viðskipta- og um-
hverfisfræðingur.
tæki sem fjalla um umhverfismál. Heimsóknin var
skipulögð af Finni Sveinssyni, viðskiptafræðingi
og umhverfisráðgjafa hjá ráðgjafarfyrirtækinu
Ecoplan AB í Gautaborg. Komumenn nutu mikillar
gestrisni af hálfú Ecoplan, og sem dæmi um það
má nefna að Gautaborgarheimsókninni lauk með
samsæti í húsnæði fyrirtækisins.
Ekocentrum
í Gautaborg er starfrækt umhverfismiðstöðin
Ekocentrum, sem hefur m.a. að geyma stærstu
varanlegu umhverfisvörusýninguna í Svíþjóð. Mið-
stöðin er rekin sem sjálfstæð stofnun, þar sem fram-
leiðendur og seljendur vöru og þjónustu geta leigt
sýningarbása. Auk þess er boðið upp á fræðslu af
ýmsu tagi, jafnt fyrir starfsfólk fyrirtækja sem
skólahópa. Hjá Ekocentrum starfa um 10 manns.
Sýningarsvæðið i Ekocentrum er urn 1000 m2 að
grunnfleti. Þar sýna um 30 aðilar vörur sínar og
þjónustu, sem í öllum tilvikum tengist viðleitninni
við að draga úr neikvæðum áhrifum mannsins á
umhverfið. Þarna gefur m.a. að líta umhverfis-
vænar lausnir í fráveitumálum, meðhöndlun úr-