Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Blaðsíða 14
Samtalið
Menningarborgarárið:
Treysti böndin milli Reykjavíkur
og annarra sveitarfélaga
Samtal við Ingbjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri. Myndina tók Gunnar G. Vigfússon á skrifstofu borgarstjóra í Ráðhúsinu.
„Menningarborgarárið 2000 styrkti samstarfið
milli höfuðborgarinnar og annarra sveitarfélaga,“
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri er
hún var innt eftir því hverju menningarborgarárið
2000 hefði skilað að því er varðaði samstarf höfuð-
borgarinnar við önnur sveitarfélög innanlands,
tengsl Reykjavíkur við aðrar menningarborgir og
þar með hið alþjóðlega borgasamfélag og síðast en
ekki síst uppbyggingu menningarstofnana í borg-
inni til framtíðar.
„Reynslan er í alla staði jákvæð,“ sagði Ingibjörg
Sólrún. „Upp úr stendur víðtæk samstaða og sátt
milli allra sem hlut áttu að rnáli, milli borgar og
listamanna og fulltrúa ríkisins og þeirra sveitar-
stjórna, sem aðild áttu að þeirn 32 verkefnum sem
voru sameiginleg verkefni borgarinnar og annarra
sveitarfélaga. Oft koma upp ágreiningsefni við
hliðstæð verkefni og auðvelt væri að segja sem svo
að fjármunum væri betur varið til annarra hluta en
hátíðarhalda, en slíkar raddir heyrðust varla. Þetta
finnst mér upp úr standa eftir á og raunar merkilegt
hve góð sátt og samstaða ríkti milli allra sem að
verkefninu stóðu. Eins hvað verkefnið varð ijöl-
breytt, en unnið var út frá þeirri merkingu að
menning væri allt sem maðurinn gerir vel, hvort
sem það er að rækta korn, semja tónverk eða
stunda sjó. Öll metnaðarfull viðleitni til að bæta
einhverju við það sem fyrir var með jákvæðri til-
finningu var tekin gild. Þetta var líka meginhugs-
unin bak við þetta allt, að allir hópar samfélagsins
gætu sýnt og tjáð sína menningu. Það var ánægju-
legt að íylgjast með þegar heilt samfélag í einum
bæ tók sameiginlega á svona verkefni; þá varð það
jafnt meðvitað sem ómeðvitað til að treysta böndin
rnilli Reykjavíkur og annarra sveitarfélaga. Þarna
var Reykjavík komin út á land og öfugt, til dæmis
Grindavík kornin til Reykjavíkur. Rekstrarafgang-
urinn eftir árið var síðan notaður til að stofna
menningarborgarsjóð sem væntanlega á eftir að
efla þessi bönd milli borgarinnar og annarra sveit-
arfélaga.“