Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Page 32

Sveitarstjórnarmál - 01.12.2001, Page 32
Héra&sskjalasöfn Starfsemi í svona skjalasafni er umsvifamikil og hlutverk hins nýja safns er fjölþættara en hins gamla. Nú er ekki aðeins um að ræða bæjarskjöl heldur líka skjöl frá fyrirtækjum í Kópavogi, ein- staklingum og félögum. Allt fer þetta eftir reglu- gerð um héraðsskjalasöfn og tvennum lögum, ann- ars vegar lögum um Þjóðskjalasafn Islands og hins vegar upplýsingalögum. Hvort tveggja eru sívax- andi þættir, upplýsingaþjónustan í daglegum rekstri sveitarfélagsins annars vegar og hins vegar söfnun og varðveisla sögulegra heimilda. Kópavogur hefur stækkað mjög ört, og það ýtti ásamt öðru á stofnun þessa nýja safns, héraðsskjalasafnsins. Þjóðskjala- vörður, Olafur Asgeirsson, ritaði Kópavogsbæ bréf hinn 2. janúar 1998 um skjalasafnsmálin þar sem hann gaf í raun tvo kosti: Annars vegar var sá kostur að stofna héraðsskjalasafn sem hann rnælti sterklega með. Ef bærinn hefði ekki treyst sér til þess þá óskaði þjóðskjalavörður eftir viðræðum um skjalaskil frá Kópavogi til Þjóðskjalasafnsins. Er- indi þessu var vísað til umsagnar bæjarskjalavarðar og bæjarlögmanns og samkvæmt tillögu þeirra varð fyrri kosturinn fyrir valinu. Það þótti eðlilegt og mjög við hæfi að þetta stór bær byði upp á slíka þjónustu sem þessa. Menn vildu hafa skjölin sín heima í héraði. Almenningur hefur þegar leitað mikið til okkar og reynsla annarra sveitarfélaga hefur verið sú. T.d. hefur reynsla Borgarskjalasafns í Reykjavík og héraðsskjalasafna víða um land verið sú að innansveitarfólk hefur komið skjölum sínum til varðveislu hjá téðum söfnum. Ef fólk vill er hægt að takmarka aðgang að slíkum skjölum eftir samningum við hvern og einn. Upplýsingar á ýmiss konar formi eru varðveittar í safninu sem hafa sjórnsýslulegt eða sögulegt gildi, nema hvort tveggja sé. Sem dærni má nefna rafræn gögn, auk alls konar pappíra og mynda, svo og varðveitir safnið hljóðupptökur. Safnið er farið að starfa af fullum krafti og er fólk velkomið þótt enn sé verið að flytja og vinna nokkra undirbúningsvinnu. Safnið var vígt hinn 12. desember sl. 1'llllll.lJ DANlEL ÓLAFSSON EHF. SKÚTUVOGUR 3 • 104 REYKJAVlK • SlMI: S80 6600 • FAX: 580 6886 Natfang: gardarOdanol la • Heimatida: rrww danor n Kaffivélarnar sem auðvelda þér lífið I afitesse Merrild kaffikerfi býður heildarlausn fyrir fyrirtæki, veitingahús og stofnanir I kaffiþjónustu Cafitesse-kerfið Með því að nýta sérstaka kosti Cafitesse-vélarinnar, kaffisins og hvernig það er pakkað er fljótlegt að laga fínasta gæðakaffi. Notkun vélarinnar er auðveld og viðhald er I lágmarki. Þannig er unnt að bera fram mikið magn af nýlöguðu úrvalskaffi með því að þrýsta á hnapp, á öllum tímum sólarhringsins. Engar óhreinar kaffisíur sem þarf að hreinsa, enginn kaffikorgur sem þarf að fleygja. Hvort sem þörf er á 2 bollum eða 200 á klukkustund hefur aldrei verið auðveldara að bjóða hágæöakaffi. Gæði og magn • Nýlagaö Merrild kaffi í háum gæöaflokki • Bolli af nýlöguðu kaffi á 2 sekúndum og kanna á 10 sekúndum • Sérlega auðveld í meöförum • Ekkert fer til spillis • Sáralítil þrif og viðhald • Einkar örugg í rekstri • Sérstakur krani fyrir tevatn • Yfirsýn og eftirlit með kostnaöi Cafitesse-kerfið býöur viðskiptavinum upp á 3 leiöir til að notkun henti sem flestum, þ.e.a.s. kaup, leiga eða vél lánuö.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.